Nýtt norrænt fréttabréf: Norræn viðfangsefni
Nú er hægt að gerast áskrifandi að fréttum sem flokkaðar eru í efnisflokka á norden.org.
Úrval fréttabréfa frá Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni hefur aukist
- Ljósmyndari
- Silje Bergum Kinsten/ norden.org
Norðurlönd í þemum er úrval frétta frá Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni, sem flokkaðar eru í sjö mismunandi efnisflokka
– þú getur gerst áskrifandi að eftirfarandi efnisflokkum:
- Menning, tómstundir og fjölmiðlar
- Lög og réttur
- Umhverfi og náttúra
- Norðurlönd og umheimurinn
- Menntun og rannsóknir
- Velferð og jafnrétti
- Efnahagsmál, atvinna og atvinnulíf
Undir efnisflokkunum sjö eru fjölmargir undirflokkar eins og sjá má á yfirliti yfir norræn samstarfssvið á norden.org
Fréttir eru sendar reglulega, en bilið á milli þeirra fer eftir fjölda frétta í hverjum efnisflokki.
Nýja fréttabréfið er m.a. sett á stofn til þess að bregðast við niðurstöðum könnunar á þekkingu og afstöðu hagsmunaaðila sem tengjast Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni, sem gerð var fyrr á árinu.
Sjá nánar um áskrift og góða skemmtun við lesturinn.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
