Nýtt tölublað Analys Norden: Eftir loftslagsráðstefnuna COP15
Hver er afstaða Norðurlanda í loftslagssamningunum að lokinnni loftslagsráðstefnunni? Lesið um stöðu loftslagsmála á Norðurlöndum og í ESB í nýju tölublaði Analys Norden.
Hvernig er staðan innan ESB og á Norðurlöndum eftir COP15 og hvað telja greinahöfundar að framtíðin beri í skauti sér í loftslagsmálum?
Margir telja loftslagsráðstefnuna COP15 hafa misst marks, en næsta skerfið í starfi Sameinuðu þjóðanna verður COP16, þar sem fylgt verður eftir niðurstöðum leiðtogafundarins í Kaupmannahöfn.
Margir litu á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna sem tilraun til að innleiða nýjar aðferðir í alþjóðlegu samstarfi.
- aðferð, sem ekki skilaði miklum árangri, en varð samt sem áður til þess að koma á breytingum alþjóðlegu samstarfi.
Stóru efnahagsveldin eins og BRIC-löndin og náið samstarf fjölmargra þróunarríkja gerði á margan hátt leikendur í hefðbundnum alþjóðastjórnmálum skák og mát.
- og ráðstefnan varð prófraun bæði fyrir Dani sem fóru með formennsku á leiðtogafundinum og Svía sem voru með formennsku hjá ESB.
Í Analys Norden í þessum mánuði er lagt mat á stöðu loftslagsmála á Norðurlöndum og í ESB eftir COP15, auk þess sem fjallað er um samstarf norrænu ríkjanna á sviði loftslagsmála.
Hvernig er staðan í hverju landi fyrir sig og hvað telja greinahöfundar að framtíðin muni hafa í för með sér?
Jafnframt kynnum við breytingar í þessu fyrsta tölublaði ársins af Analys Norden.
Analys Norden mun nú koma út sex sinnum á ári og verður birt á opinberri vefsíðu norræna samstarfsins: norden.org
Nánar á analysnorden.org
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
Del.icio.us
Facebook
Google Bookmarks
Twitter
Digg
