Óánægja í miðflokkahópnum með kjör forseta
Miðflokkahópurinn í Norðurlandaráði lýsti yfir óánægju með brot á grunnreglu um að flokkarnir skiptist á um að fara með formennsku í ráðinu. Helgi Hjörvar, nýkjörinn forseti Norðurlandaráðs er þriðji forsetinn úr röðum jafnaðarmanna í röð.
„Miðflokkahópurinn er ekki ánægður með þessa kosningu. Það er ekki vegna þess að verið er að brjóta gamla hefð, hefð um að skiptast á, sem þýðir að síðastliðin 40 hefur forsetinn aldrei komið úr sama flokkahóp meira en tvisvar í röð“, sagði Marion Pedersen úr miðflokkahópnum á fimmtudag.
Miðflokkahópurinn bendir á að hann vill viðhalda grunnreglunni um að forsetinn komi úr flokkahópum til skiptis.
„Miðflokkahópurinn vil einungis benda á að, að þessari kosningu lokinni fá við fimmta forsetann úr röðum jafnaðarmanna á sex árum“, sagði Pedersen.
Marion Pedersen vísaði til þess að Ole Stavad og jafnaðarmenn hefðu einnig vakið athygli á grunnreglunni árið 2002. Þá töldu jafnaðarmenn að flokkahópur hægrimanna hefði einokað forsetaembættið með sex forsetum úr flokkahópi hægrimanna frá árinu 1991.
