Endurskoðunarvinnan var ofarlega á dagskrá fyrsta fundar Dagfinn Høybråten, nýs framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar og Ewa Björling, samstarfsráðherra Svíþjóðar sem fer með formennsku í nefndinni þetta árið.
Fyrsti fundur Dagfinn Høybråten og Ewa Björling. Ljósmynd: Taimi Köster
Mótun skilvirks og nútímalegs norræns samstarfs var það sem Björling, samstarfsráðherra lagði fyrst og fremst áherslu á.
„Ég vænti mikils af Dagfinn Høybråten, nýjum framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Svíþjóð leggur mikla áherslu á endurskoðun Norrænu ráðherranefndarinnar og ég vona að sú vinna stuðli að því að gera ráðherranefndina að öflugra verkfæri fyrir norrænu ríkisstjórnirnar. Ég vænti þess að hann verði góður framkvæmdastjóri og hann hefur lofað mér því beinskeyttur og hnitmiðaður í endurskoðunarvinnunni“, sagði hún.
Tækifæri til endurskipulagningar voru ein af ástæðum þess að Dagfinn Høybråten samþykkti að taka að sér starf framkvæmdastjóra. Starf hans fyrir Norðurlöndin er umfangsmikið, meðal annars hefur hann bæði verið þingmaður og forseti Norðurlandaráðs. Hann veit hvaða gagn er hægt að hafa af samstarfinu og hefur gefið skýrt til kynna áhuga sinn á að stuðla að enn betri árangri.
„Stjórnmálamenn eiga að skilgreina markmiðin. Með aðstoð skýrra og vel útfærðra tillagna mun ég sjá til þess að árangur náist“, sagði Dagfinn Høybråten, og taldi að alþjóðleg samtök eins og Norræna ráðherranefndin geti áorkað miklu með því að vinna markvisst, vera þrautseig og starfa í krafti þekkingar.
Dagfinn Høybråten segir örlítið ögrandi að ráðið búi yfir ofgnótt af þekkingu en skorti á framkvæmd í norrænu samstarfi. Með því á hann við að hinir ýmsu undirstofnanir samtakanna skapi mikla þekkingu og mikla reynslu, en að veikleikinn sé að árangur sé ekki nægur.
„Við verðum að sjá til þess að við gerum gagn, að árangurinn verði nothæfur. Það á við um allt frá þeim rannsóknum sem gerðar eru í tengslaneti okkar til pólitískrar þekkingar.“
Dagfinn Høybråten og Ewa Björling ræddu ennfremur um stefnumarkandi hluta norræns samstarfs. Mikill áhugi er í umheiminum á hinu svonefnda norræna líkani. Miðlun þeirrar reynslu sem norrænt samstarf býr yfir getur bæði stutt við metnað annarra svæða um að finna friðsamlegar lausnir í framtíðinni og eflt Norðurlönd sem vörumerki.
Bodil Tingsby
Sími
+45 33 96 03 57
Tölvupóstur
bot@norden.org