Document Actions

Öll norrænu ríkin verða að taka þátt í NATÓ, ESB og Evru-samstarfinu

Ef norrænu ríkin eiga að taka skref í þá átt að mynda sambandsríki er nauðsynlegt að þau öll gerist aðilar að NATÓ, ESB og Evru-samstarfinu. Þetta eru viðbrögð Halldórs Ásgrímssonar, framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar við tillögu sænska rithöfundarins Gunnar Wetterberg um stofnun norræns sambandsríkis.

27/01 2010
Halldór Ásgrímsson

Ef Norðurlöndin eiga að taka skref í átt að sambandsríki er nauðsynlegt að öll norrænu ríkin gerist aðilar að NATÓ, ESB og Evru-samstarfinu, sagði Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Samband norrænu félaganna bauð þeim tveimur á forsætisnefndarfund til þess að ræða hugmyndina í Kristjánsborg í Kaupmannahöfn.

Gunnar Wetterberg skýrði frá hugmynd sinni um norrænt sambandsríki, en hún hefur orðið tilefni fjörugra umræðna á Norðurlöndum, frá því hann setti hana fram í grein í Dagens Nyheter á sama tíma og Norðurlandaráðsþing var haldið í Stokkhólmi í október í fyrra

Samkvæmt Wetterberg mun norrænt sambandsríki veita Norðurlöndum sterkari valdastöðu á alþjóðlegum vettvangi, því þau yrðu saman 10. stærsta hagkerfi heims, litlu minna en Kanada og Spánn, en stærra en Brasilía og Rússland.

- Ef Norðurlöndin fengju að taka þátt í G20-hópnum myndu þau fá miklu meira vald en þau hafa í dag sem fimm lítil ríki, sagði Wetterberg.

Samkvæmt Wetterberg mun norrænt sambandsríki veita Norðurlöndum sterkari valdastöðu á alþjóðlegum vettvangi, því þau yrðu saman 10. stærsta hagkerfi heims, litlu minna en Kanada og Spánn, en stærra en Brasilía og Rússland.

Wetterberg sem kallar hugmynd sína "raunsæja draumsýn", útskýrði að með Sviss sem fyrirmynd væri vel hægt að ímynda sér mun nánara norrænt samstarf um utanríkis- og varnarmál, rannsóknir, vinnumarkað og löggjöf.

Halldór Ásgrímsson sagði að sér fyndist afar jákvætt að hugmyndir Gunnars Wetterberg hefðu kveikt umræður um norrænt samstarf.

Hann sagði að hann teldi að aðild að NATÓ, ESB og Evru-samstarfinu væri fyrsta pólitíska prófraunin á nánara norrænt samstarf.

Hann kvaðst jákvæður gagnvart því að vinna áfram að því að gera norræna samninga, t.d. á sviði skattamála og höfundarréttar.

- Það yrðu erfiðar en einnig raunhæfar viðbætur við núverandi norræna samstarfssamninga eins og Helsinkisáttmálann og tungumálasáttmálann, sagi Halldór Ásgrímsson.

Gunnar Wetterberg treystir nú á að þingmenn í Norðurlandaráði leggi fram tillögu um að gerð verði forkönnun á því hvernig norrænt sambandsríki gæti litið út, fyrir Norðurlandaráðsþing sem haldið verður á Íslandi í nóvember.

Grein Gunnars Wetterberg í Dagens Nyheter

Skráning

Aðeins skráðir þátttakendur geta setið fundinn. Sendið ósk um skráningu til Henrik Killianders á netfangið heki@norden.org

Tengt efni
  • Sambandsríkið Norðurlönd

    Í nýrri bók Norðurlandaráðs og Norrænu ráðherranefndarinnar, Sambandsríkið Norðurlönd (Förbundsstaten Norden) færir sagnfræðingurinn og samfélagsrýnirinn Gunnar Wetterberg rök fyrir einni athyglisverðustu samfélagshugmynd þessarar aldar – að myndað verði sambandsríki Norðurlanda. Raunverlulegt sambandsríki sem hefði umsjón með utanríkis- og varnarmálastefnu, fjármálum og öllum mikilvægum málefnum innan löggjafarinnar allt frá innflytjenda- til félagsmálastefnu.

  • Undersøgelse af det Nordiske samarbejde

    Undersøgelse af den nordiske befolknings kendskab og holdning til Nordisk Råd og Nordisk Ministerråd og et særligt forstærket nordisk samarbejde.