Document Actions

Örugg norræn matvæli í kastljósinu á heimssýningunni í Sjanghæ

Á Norðurlöndum getur maður verið öruggur um að óhætt sé að borða þann mat sem borinn er á borð. Þar hefur verið lögð rík áhersla á öryggi matvæla og meðal annars verið þróað aðferðir til að meðhöndla matvæli og lágmarka áhættu.

Aug 25, 2010

Þetta eru þau skilaboð sem norrænir ráðherrar með ábyrgð á matvælaframleiðslu vilja koma á framfæri  á ráðstefnu um matvælaöryggi í Sjanghæ. Í grein sem ráðherrarnir rita saman leggja þeir áherslu á að samstarf og upplýsinamiðlun um matvælaöryggi skipti miklu máli, ekki síst í ljósi þess hve verslun og viðskipti hafi aukist mikið  milli landa við hnattvæðinguna.

„Með því að læra hver af öðrum, bæði af lausnum og mistökum, getum við tryggt að vörur sem við flytjum inn og út séu öruggar“, segir í grein ráðherranna.

Þekkingarmiðlun er eitt af markmiðunum með matvælaráðstefnu sem haldin verður 30. ágúst í tengslum við heimssýninguna  í Sjanghæ. Fulltrúar norrænna og kínverskra stjórnvalda og  viðskiptalífis munu þar miðla af reynslu sinni  með það að markmiði að auka öryggi  í matvælaframleiðslu.

„Við byggjum aðferðir okkar á því að gera framleiðendur ábyrgari fyrir því að matvælin séu örugg  og að tryggja eftirlit með þeim, þar sem vísindalegri  áhættugreiningu er beitt  ef grípa þarf inn í framleiðsluferlið. Við teljum að aðrar þjóðir  geti nýtt sér þær starfsaðferðir sem við höfum tileinkað okkur“, segir í grein ráðherranna.

Meðal gesta á ráðstefnunni  verða  ráðherrar með ábyrgð á matvælaframleiðslu í Finnlandi og Danmörku, þau Sirkka-Liisa Anttila og Henrik Høegh, auk áhrifaríkra fulltrúa frá Kína og Norðurlöndunum.  Norræna ráðherranefndin stendur fyrir ráðstefnunni í samstarfi við kínversk stjórnvöld um gæðaeftirlit, eftirlit og sóttkví, AQSIQ.

Norræna ráðherranefndin hefur komið að fjölmörgum viðburðum á heimssýningunni Sjanghæ.

Vefsíða viðburðarins

Grein ráðherranna

Norðurlönd á EXPO Sjangæ

Tengiliðir

Lene Breum Larsen
Sími +4533960243
Tölvupóstur lbl@norden.org