Opið bréf til norrænu utanríkisráðherranna um Stoltenbergskýrsluna
Samband norrænu félaganna á Norðurlöndum (FNF) vill efla norrænt samstarf á sviði utanríkismála og taka því vel hugmyndir í skýrslu Torvald Stoltenbergs, fyrrverandi utanríkisráðherra Noregs, sem hann samdi að frumkvæði norrænu utanríkisráðherranna. Í opnu bréfi til ráðherranna fer FNF fram á að skýrslan verði notuð á hagnýtan hátt.
Í bréfi Sambands norrænu félaganna segir:
“Um þessar mundir standa Norðurlandabúar ekki andspænis hefðbundnum hernaðarógnum, heldur mörgum úrlausnarefnum sem tengjast hnattvæðingu og loftslagsbreytingum. Þess vegna eiga norrænu ríkin að standa vörð um sameiginleg svæði á eins hagkvæman hátt og mögulegt er. Leggja ber áherslu á sameiginleg viðbrögð við vá og á almannavarnir.
Norrænu ríkin hafa eftir seinni heimsstyrjöld valið ólíkar lausnir í öryggismálum, en fylgst hvert með öðru og stuðlað að stöðugleika og jafnvægi sem tryggði frið á tímum kalda stríðsins. Í breyttu pólitísku landslagi dagsins ætti að vera gerlegt fyrir norrænu utanríkisráðherrana að framkvæma flestar þær tillögur sem kynntar eru í Stoltenbergskýrslunni.”
Norrænu félögin hvetja norrænu utanríkisráðherrana til að vinna að því að skrifað verði undir bindandi sameiginlega samstöðuyfirlýsingu norrænu ríkjanna. Það væri liður í því að tryggja enn betur sameiginlegar varnir norrænna samfélaga og framtíðaröryggi í Norður-Evrópu.
