Document Actions

Pernilla August, Gyrðir Elíasson, Mats Gustafsson og Scandic hótelin tóku við verðlaunum Norðurlandaráðs

Umhyggja fyrir náttúrunni og baráttan fyrir sjálfbæru samfélagi voru leiðarstefin í ávarpi Bertel Haarders, forseti Norðurlandaráðs, Þegar hann afhenti bókmennta-, tónlistar-, kvikmynda- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs í Kaupmannahöfn á miðvikudag.

02/11 2011
Gyrðir Elíasson

Ég vona að heimur tækninnar og hinna svokölluðu framfara muni aldrei alveg kæfa þann lífskraft sem ljóðlistin býr yfir, lífskraft sem á rætur í sjálfri jörðinni, sagði Gyrðir Elíasson, þegar hann tók við bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

- Þegar sú stund rennur upp að borgarsamfélögin hafa gleymt uppruna sínum er voðinn vís. Undir allri steypunni er enn jörð. Ég vona að heimur tækninnar og hinna svokölluðu framfara muni aldrei alveg kæfa þann lífskraft sem ljóðlistin býr yfir, lífskraft sem á rætur í sjálfri jörðinni, sagði Gyrðir Elíasson, þegar hann tók við bókmenntaverðlaunum Norðurlandaráðs fyrir smásagnasafnið Milli trjánna.

Fulltrúi Scandic-hótelanna tók við umhverfisverðlaunum Norðurlandaráðs fyrir að stuðla í starfsemi sinni að sjálfbærri ferðaþjónustu á Norðurlöndum og um allan heim. Í þakkarræðu ítrekaði Svein Arild Stee-Mevold að hann tæki við verðlaununum fyrir hönd allra starfsmanna.

- Það er verið að verðlauna alla okkar starfsmenn fyrir framlag þeirra til þess að bæta umhverfið. Þeir eru mjög ánægðir með að vinna þeirra við sjálfbæra ferðaþjónustu skuli fá þessa viðurkenningu, sagði Svein Arild Steen-Mevold.

Pernilla August tók við kvikmyndaverðlaunum Norðurlandaráðs fyrir Svínastíuna, frumraun sína sem kvikmyndaleikstjóri, ásamt Lolita Ray handritshöfundi og frameiðendunum Helena Danielsson og Ralf Karlsson. Í rökstuðningi dómnefndar er myndin sögð vera „áhrifamikið og margþætt drama - á sama tíma hrátt og fínlegt, dökkt en engu að síður fullt af ljósi lífsins“.

Myndskeið: Viðtal við Pernilla August um þýðingu verðlaunanna fyrir hana.

Mats Gustafsson tók við tónlistarverðlaunum Norðurlandaráðs sem viðurkenningu fyrir framlag sitt til endurnýjunar spunatónlistarinnar. "Með nýskapandi saxófónleik leitar hann stöðugt út fyrir ramma þeirra skilgreininga sem við notum til að flokka þá tónlist sem við höfum ekki heyrt áður" segir í rökstuðningi dómnefndar.

Verðlaun Norðurlandaráðs nema 350.000 dönskum krónum (um 7 milljónum íslenskra króna) og voru afhent af Bertel Haarder, forseta Norðurlandaráðs, í konunglega tónlistaháskólanum í Kaupmannahöfn.

Tengiliðir

Louise Hagemann
Sími +45 33 96 03 31
Tölvupóstur loha@norden.org

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Tengt efni