Pólitískir saumaklúbbar?
Jafnrétti þýðir ekki alltaf það sama á Vestur-Norðurlöndum. Íslendingar hafa til að mynda bannað kaup á kynlífsþjónustu, að fyrirmynd Svía, sett kynjakvóta fyrir stjórnarsetu í fyrirtækjum, að fyrirmynd Norðmanna og þeir urðu fyrstir til þess í Evrópu að banna nektardans. Á meðan glíma Færeyingar enn við að auka stjórnmálaþátttöku kvenna.
Siv Friðleifsdóttir og Aleqa Hammond á vestnorrænu kvennaráðstefnunni.
- Ljósmyndari
- Silje Bergum Kinsten/norden.org
„Hvað varðar jafnrétti, þá höfum við Norðurlöndin annars vegar og Færeyjar hins vegar", sagði Kristianna Winther Poulsen, formaður færeyska jafnréttisráðsins á vestnorrænu kvennaráðstefnunni 7. júní.
Þar vísaði hún til þess að af 33 þingmönnum Færeyinga eru aðeins fimm konur. Í Færeyjum er staðan allt önnur en annars staðar á Norðurlöndunum, þar sem konur hafa haslað sér völl. Í Færeyjum er staðan allt önnur en annars staðar á Norðurlöndunum, þar sem konur hafa haslað sér völl.
Siv Friðleifsdóttir, þingmaður og fulltrúi í Norðurlandaráði, telur að þrýstingur frá konum sé enn mjög mikilvægur og að það sé ein af ástæðum þess að Ísland hefur náð jafn langt og raun ber vitni í jafnréttismálum.
„Breytingarnar í íslensku lagasetningunni hefðu ekki orðið án þrýstings frá konum. Þrýstingur frá kvennasamtökum og að konur standi saman á Alþingi þvert á flokka skiptir enn miklu máli", sagði Siv Friðleifsdóttur á vestnorrænu kvennaráðstefnunni mánudaginn 7. júní.
Kristianna Winther Poulsen telur að eitt af því sem gæti orðið færeyskum konum hvatning til þátttöku í stjórnmálum væri að gera saumaklúbba pólitíska, en nær allar konur í Færeyjum eru í saumaklúbb.
„Færeyjar eru sérlega karllægt samfélag og við stöndum öðrum norrænum ríkjum langt að baki í jafnréttismálum. Við höfum verið einangruð og trúin skipar háan sess í samfélaginu. Ef til vill er það ein af ástæðum þessarar hefðbundnu sýnar á kvenhlutverkið", segir Bergtóra Høgnadóttir Joensen, þingmaður á færeyska lögþinginu.
Hún telur að í Færeyjum sé nauðsynlegt að hvetja konur til bjóða sig fram til þings með því að leggja áherslu á ávinning þess að vera stjórnmálakona, meðal annars vegna áhrifa, þess að móta samfélagið og stuðla að sveigjanlegu samfélagi og ekki síst með því að benda á að það er gaman að vera stjórnmálamaður.
„Ég tel að við þurfum að setja kynjakvóta, allavega tímabundið, segir Bergtóra Høgnadóttir Joensen en hún er fulltrúi vinstri-grænna í Þjóðveldisflokknum.
Bergtóra Høgnadóttir Joensen telur einnig að sterkar kvennafyrirmyndir séu mikilvægar ef breyta á stöðunni í Færeyjum. Það telur Aleqa Hammond, flokksformaður grænlenska jafnaðarmannaflokksins Siumut, einnig að eigi við á Grænlandi.
Á kvennaráðstefnunni lagði Hammond einnig áherslu á að konur ættu að leggja meiri áherslu á að leiðbeina hver annarri.
Vestnorræna kvennaráðstefnan var haldin í Reykjavík mánudaginn 7. júní 2010, fyrir henni stóðu þingkonur á Alþingi, meðal þeirra nokkrar sem einnig eru fulltrúar í Norðurlandaráði.
Tengiliðir
Silje Bergum Kinsten
Sími
+45 33 96 02 51
Tölvupóstur
siki@norden.org
