Document Actions

Ráðherrar vilja auðvelda leiðir milli skóla og atvinnulífs

Breytingar sem verða við að fara úr skóla út á vinnumarkaðinn voru ofarlega á baugi á norræna vinnumarkaðsfundinum í Stokkhólmi á fimmtudag, sem norrænu forsætisráðherrarnir og ráðherrar vinnumarkaðsmála sátu. Frederik Reinfeldt forsætisráðherra Svíþjóðar, en þar er mesta atvinnuleysi meðal ungs fólks á Norðurlöndum, telur að Svíar geti lært margt af grannríkjunum vinnstaðaþjálfun ungs fólks.

16/05 2013

Pallborðsumræður ráðherra vinnumarkaðsmála. Ljósmynd: Martina Huber/Regeringskansliet

Í Finnlandi eru til svokallaðir lærlingasamningar og í Noregi og Danmörku eru lærlingakerfi. Sænska ríkisstjórnin leggur nú áherslu á þríhliða samræður við fagfélög og vinnuveitendur til þess að ná heildarsamningi sem gefur ungu fólki kost á starfsþjálfun, í stað þess að læra eingöngu á verkstæðum í skóla.

Svíar hafa á formennskutímabili sínu í Norrænu ráðherranefndinni unnið að samþættu atvinnulífi fyrir ungt fólk og beina athyglinni að ungu fólki sem hætt er við að verða utanveltu.

„Tenginguna milli menntunar og vinnumarkaðs verður að skapa þegar í skóla“, sagði Hillevi Engström sem benti einnig á að skólinn verði að huga að hverjum einstökum nemanda.

„Ungt fólk á skilið landamæralausan norrænan vinnumarkað“

Norrænu forsætisráðherrarnir ítrekuðu mikilvægi þess að auðvelda ungu fólki að starfa í öðrum löndum.

„Ungt fólk er ekki eingöngu duglegt að sækja um vinnu, það er einnig hreyfanlegt. Það er skylda okkar að gera allan norræna vinnumarkaðinn aðgengilegan fyrir ungt fólk og fjarlægja stjórnsýsluhindranir“, sagði Helle Thorning-Schmidt forsætisráðherra Danmerkur.

Jyrki Katainen forsætisráðherra Finnlands var þessu sammála og sagði að á norðlægum svæðum landanna væru svipuð vandamal óháð landamærum, þar væri hægt að vinna saman bæði að því að finna starfsfólk, t.d. fyrir námaiðnaðinn, og að finna störf fyrir atvinnulausa.

Á blaðamannafundi eftir fundinn sagði Katainen að ein hugmynd væri að setja upp skrifstofu í Norður-Noregi sem ynni með sveitarfélögum í grannríkjunum að því að tengja saman atvinnuleitendur og störf.

Þríhliða viðræður á norrænum vettvangi?

Annika Huitfeldt benti á þörfina fyrir norrænt samstarf þar sem bæði fagfélög og vinnuveitendur taka þátt.

„Við þurfum þríhliða viðræður á norrænum vettvangi“, sagði Huitfeldt.

Hillevi Engström sagði að þetta væri áhugaverð hugmynd, en erfið í framkvæmd þar sem einungis fyrirfinnst norrænn aðili sem fer með málefni faggreina en enginn sem fer með málefni vinnuveitenda.

Hægt er að sjá norræna vinnumarkaðsfundinn í heild á vefsíðu sænsku ríkisstjórnarinnar

Lesið einnig umfjöllun Arbetsliv i Norden um vinnumarkaðsfundinn!

Tengiliðir

Heidi Orava
Sími +45 21 71 71 48
Tölvupóstur heor@norden.org