Ráðstefna í Kalíningrad um félagslega aðlögun
Starfið á upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaliningrad gengur vel. Þann 30. nóvember stóð skrifstofan fyrir ráðstefnu um félagslega aðlögun fatlaðra barna. Ráðstefnan var haldin í I.Kant`s Russian State University í samstarfi við háskólann, héraðsstjórnina og samtökin "Maria".
Meðal frummælenda á ráðstefnunni voru Marianna Smedegaard verkefnastjóri í NSH og Arne Grove forstöðumaður skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Kalíningrad.
Lena Birch Christiansen, sem rekur heimavistarskóla fyrir fötluð börn í Danmörku, sagði frá góðu samstarfi við hliðstæðan skóla í bænum Krylovo á Kalíningrad svæðinu.
Í tengslum við ráðstefnuna sýndi hópur fatlaðra gestum leiksýningu og sett var upp ljósmyndasýning frá frjálsu félagasamtökunum "Maria".
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar var opnuð í Kaliningrad þann 14. september með námsstefnu. Árið 1995 opnaði upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Pétursborg, og við hana hefur nú bæst upplýsingaskrifstofa í enn einum rússneskum bæ við Eystrasaltið.
