Ráðstefna Sameinuðu þjóðanna um notkun kvikasilfurs fer hægt af stað
Langur aðdragandi var að samningaviðræðum um nýjan alþjóðasáttmála um notkun kvikasilfurs áður en söguleg ráðstefna Sameinuðu þjóðanna hófst í Stokkhólmi á mánudag. Innbyrðis átök hafa verið innan Evrópusambandsins o valda því að litlar líkur eru taldar á því að hægt verði að undirrita nýjan sáttmála í lok ráðstefnunnar. Framkvæmdastjórn ESB og ríkisstjórnir aðildarríkjanna eru ekki einhuga um hver skuli vera fulltrúi ESB í samningaviðræðunum.
Andreas Carlgren
Ekki er þó talið að ósætti innan ESB muni standa í vegi fyrir alþjóðlegu samkomulagi. Samningsferlið er á byrjunarstigi og ráðstefnan í Stokkhólmi sú fyrsta af fimm sem leiða eiga til bindandi samkomulags um nýtingu og losun kvikasilfurs. Miðað er að því að samkomulagið taki gildi árið 2013.
Andreas Carlgren, umhverfisráðherra Svíþjóðar, og Angela Cropper, aðstoðaryfirmaður umhverfisáætlunar Sameinuðu þjóðanna, lögðu í framsögum sínum á ráðstefnunni, áherslu á mikilvægi þess að gert yrði alþjólegt samkomulag um nýtingu kvikasilfurs.
„Það eru ekki einungis niðurstöður sem fást á rannsóknastofum sem sýna fram á skaðsemi kvikasilfurs, við höfum þegar hvaða áhrif það hefur á heilsufólks“, sagði Cropper.
Norðurlöndin og Norræna ráðherranefndin hafa verið í fararbroddi í samningsferlinu um notkun kvikasilfurs og á það lagði sænski umhverfisráðherrann áherslu. Norðurlöndin, ekki síst Svíþjóð, hafa með kvikasilfurbanni, náð langt í því að banna eða takmarka notkun og losun kvikasilfurs.
Mörg hundruð stjórnendur og sérfræðingar, auk fulltrúa frjálsra félagasamtaka frá heiminum öllum, taka þátt í kvikasilfursráðstefnunni 7. – 11. júní í Stokkhólmi, sem Norræna ráðherranefndin fjármagnar.
