Document Actions

Rætt um skilgjaldakerfi og kjarnorkuvopn á fundum Norðurlandaráðs í Málmey

Eitt af þeim málum sem rætt verður á þingmannafundum Norðurlandaráðs í Málmey þriðjudaginn 21. og miðvikudaginn 22. september, verður norrænt skilagjaldakerfi.

14/09 2010
Turning Torso
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Meðal þess sem rætt verður á fundi borgara- og neytendanefndarinnar er danska leiðin, sem felur í sér að vísa á brott  norrænum ríkisborgurum sem þurfa á félagslegri aðstoð að halda , en menningar- og menntamálanefndin mun meðal annars ræða um opinbera þjónustu á Norðurlöndum.

Öryggi á sjó og umhverfisvernd í norðurhöfum  verða á dagskrá í umhverfis- og auðlindanefndinni. Forsætisnefndin mun ræða fulltrúatillögu um að Norðurlönd verði kjarnorkuvopnalaust svæði, auk þess að rætt verður um að efla norrænt samstarf um samfélagsöryggi.

Velferðarnefndin mun meðal annars koma með álit á fulltrúatillögu sem fjallar um rafrænan gagnagrunn fyrir lækna, tannlækna, hjúkrunarfræðinga og annað starfsfólk heilbrigðisstofnana á Norðurlöndum og sjálfstjórnarsvæðunum.

Septemberfundirnir eru síðustu fundir nefndanna fyrir Norðurlandaráðsþingið, sem verður haldið í Reykjavík dagana 2. til 4. nóvember. Í Málmey verður gengið frá dagskrá þingsins. Fulltrúar á Norðurlandaráðsþingi eru forsætisráðherrar, ráðherrar og þingmenn frá öllum norrænu ríkjunum.

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org

Tengt efni
  • Danir brjóta norræna samninga þegar þeir vísa fólki úr landi (News Item)

    Brottvísun norrænna ríkisborgara á félagsaðstoð veldur norrænum stjórnmálamönnum áhyggjum. Komið hefur í ljós að það eru nær eingöngu Danir sem vísa fólki úr landi.

  • Brottvísanir Norðurlandabúa til skoðunar (News Item)

    Fjölmörgum norrænum ríkisborgurum sem ekki geta séð sér farborða hefur verið vísað úr landi með dómsúrskurði, aðallega í Danmörku en einnig í Svíþjóð. Upplýsingaþjónustu Norrænu ráðherranefndarinnar Halló Norden hefur á undanförnum árum borist erindi frá norrænum ríkisborgurum sem hefur verið vísað úr landi frá því norræna ríki sem þeir búa í. Nú mun borgara- og neytendanefndin kanna málið.

  • Politiken: Danir vísar norrænum ríkisborgurum úr landi (News Item)

    „Danir vísa Norðmönnum, Svíum, Finnum og Íslendingum úr landi í trássi við norræna samninga“, segir í frétt danska dagblaðsins Politiken 7. júní.

  • Sameiginlegt norrænt skilagjaldskerfi fyrir flöskur? (News Item)

    Norðurlönd ættu að taka upp sameiginlegt skilagjaldskerfi fyrir flöskur og dósir. Þetta var skoðun margra þingmanna sem funduðu í Kaupmannahöfn á föstudag. Sameiginlegt skilagjaldskerfi myndi fyrst og fremst bæta umhverfið – miklu magni af flöskum og dósum er hent út í náttúruna ár hvert og einnig með heimilissorpi.

  • Flera modeller för nordiskt pantsystem (News Item)

    Det finns förutsättningar för ett gemensamt pantsystem för flaskor och burkar i de nordiska länderna. Jan Rehnberg, konsult och tidigare vd för Svenska Returpack, gav på onsdagen alternativ till hur ett sådant pantsystem kunde genomföras i praktiken. Rehnberg redogjorde för sin utredning för parlamentariker på Nordiska rådets januarimöten i Köpenhamn.

  • Samræmt endurvinnslugjald á Norðurlöndunum (News Item)

    Á fundum Norðurlandaráðs í Stafangri þann 15. apríl urðu fulltrúar fagnefnda um umhverfismál og atvinnulíf sammála um að leggja fram tillögu að sameiginlegu norrænu kerfi um skilagjald fyrir flöskur og dósir, allavega í Danmörku, Noregi, Svíþjóð og Finnlandi.