Rannsókn á hversu mikið af matvælum fer til spillis í verslunum
Árlega er hent gífurlegu magni af matvælum úr verslunum, ýmist vegna rangra innkaupa eða vegna þess að varan er útrunnin. Þetta kemur niður á umhverfinu og kostar miklar fjárhæðir.
Norræna ráðherranefndin, samstarfsvettvangur norrænu ríkisstjórnanna, ætlar nú að láta rannsaka hversu mikið af matvælum er hent og hvernig koma megi í veg fyrir það. Það er úrgangshópur Norrænu ráðherranefndarinnar sem sér um verkefnið. Markmiðið er að kynna niðurstöður þess í 2011.
Í lokaskýrslu er m.a. reiknað með að fram komi upplýsingar um hve miklu magni af matvælum sé fargað í hverju landi fyrir sig og að lagt verði mat á afleiðingar þess að draga úr því. Verkefninu er ætlað að setja fram góð dæmi og hugmyndir um aðgerðir, hvort heldur fyrir verslanir eða stjórnvöld, til að afstýra því að matvælum sé hent. Rannsóknin mun einnig nýtast aðildarríkjum ESB við endurskoðun þeirra á tilmælum um úrgang.
Tengiliðir
Mia Rahunen
Sími
+45 33 96 02 61
Tölvupóstur
mira@norden.org
