Rauðþörungar valda usla við vesturströnd Svíþjóðar
Sænskir vísindamenn telja að rauðþörungur sem borist hefur frá Asíu geti orðið til þess að útrýma marhálmi en á botni sem gróin er marhálmi eru uppeldisstöðvar fyrir matfisk við Svíþjóð. Þetta gæti haft í för með sér mikinn vanda fyrir sænskar fiskveiðar.
Umræddur rauðþörungur, sem ekki er upprunalegur við strendur Svíþjóðar, dreifist nú um botninn í suðurhluta skerjagarðarins við Gautaborg. Vísindamenn fundu í fyrra merki um þörunginn á ströndinni í skerjagarðinum, en fundu þá engar vaxtastöðvar. Enn sem komið er vita þeir ekki hversu hratt þörungurinn dreifir sér, en hann þekur nú um 80 prósent á afmörkuðum botnsvæðum. Frá þessu er greint á vefsíðu svæðisútvarpsins í vestur Svíþjóð.
Samkvæmt vefsíðu Fiskifrétta í Svíþjóð finnst þörungurinn bæði í Danmörku og Noregi þar sem hann hefur valdið miklum skaða. Allt bendir nú til þess að hann muni breiðast út í skerjagarðinum við Gautaborg. Vandinn er sá að þegar skrúfur báta rífa þörunginn í sundur þá rekur hann með straumum og dreifist til nýrra svæða.
Svæðisútvarp vestur Svíþjóðar http://www.sr.se/vast/nyheter/
Fiskifréttir http://www.fiskejournalen.se