Jafnréttisákvæði sem skráð eru í reglur skóla leiða til meira jafnréttis en lög sem kveða á um jafnrétti. Þetta kemur fram í skýrslunni „Sjálfbært jafnréttisstarf í leik- og grunnskólum á Norðurlöndum" sem kynnt var á norrænni jafnréttisráðstefnu í Stokkhólmi 7. maí.
Í skýrslunni sem gerð er af vísindamanninum Mia Heikkilä, eru góð og praktísk dæmi um hvernig jafnrétti er framfylgt í norrænum leik- og grunnskólum. Skýrslan byggir á viðtölum við meðal annarra kennara, leikskólastjóra og embættismenn á Norðurlöndum og í Færeyjum, á Grænlandi og Álandseyjum.
Maria Arnholm jafnréttisráðherra Svía setti ráðstefnuna og hélt því fram að fólk tengdi Norðurlönd iðulega við jafnrétti og hún var sammála Tarja Halonen forseta Finna sem sagði að jafnrétti á Norðurlöndum væri að miklu leiti norrænum körlum að þakka.
Hanna Björg menntaskólakennari frá Íslandi sagði frá námskeiði um jafnréttismál sem hún kennir og fleiri vilja sækja en komast að. Námsefni á námskeiðinu byggir að miklu leiti á dægurmenningu nútímans.
- Klám ryður sér braut í gegnum tónlistina inn í dægurmenningu okkar. Stúlkur eiga að vera fallegar og sætar. Og drengir læra að koma fram við stúlkur samkvæmt þessu, sagði Hann Björg, sem vill ekki að komið sé fram við stúlkur sem fórnarlömb og drengi sem gerendur.
Á Íslandi hefur verið sett reglugerð um jafnrétti í skólum, sem kveður á um að jafnrétti skuli vera komið á í öllu skólastarfi haustið 2015.
Danski rithöfundurinn Cecilie Nørgaard, sem skrifaði bókina Skolens bog om køn og ligestilling telur Dani hafa dregist aftur úr í jafnréttisstarfinu. Hún vonast því eftir sterku norrænu samstarfi um málið og að gert verði norrænt gæðamerki fyrir jafnrétti.
Øivind Hornslien, leikskólastjóri frá Noregi, miðlaði reynslu sinni af því að ráða karla sem leikskólakennara. Tvö atriði sem skipta máli eru að gera umhverfið karllægra og auka starfsstolt. Í Noregi hefur verið gott að styðjast við vefsíðuna „Menn i barnehagen" sem sérstaklega er gerð fyrir karla sem starfa í leikskólum.
Sænski kynjafræðikennarinn Lisa Andersson Tengnér talaði um staðalmyndir t.d. í námsefni. Andersson Tengnér segir tímabært að fjölbreytileikinn verði staðalmyndin og það sem sker sig úr verði litið jákvæðum augum.
Ráðstefnan um jafnrétti í leik- og grunnskóla var hluti af formennskuáætlun Svía í Norrænu ráðherranefndinni. Þátttakendur voru frá Norðurlöndum, Grænlandi, Færeyjum, Álandseyjum og Eystrasaltsríkjunum.
Petra Sjöström
Sími
+45 21 71 71 23
Tölvupóstur
pesj@norden.org
Heidi Orava
Sími
+45 21 71 71 48
Tölvupóstur
heor@norden.org