Document Actions

Ringulreið á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna, COP15, setti einnig sitt mark á norrænt samstarf

Loftslagssamstarf Norðurlanda var áberandi á loftslagsráðstefnu Sameinuðu þjóðanna í Kaupmannahöfn, COP15. Samstarfið var kynnt á mörgum stöðum, innan sem utan við sjálfa ráðstefnumiðstöðina, Bella Center. Sem dæmi má nefna að um 15 norrænar stofnanir kynntu starfsemi sína í sameiginlegum bás í Bella Center, en Norræna ráðherranefndin hafði yfirumsjón með kynningunni.

21/12 2009
COP15
Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Markmiðið var að kynna það fjölbreytta loftslagssamstarf sem norrænu ríkin taka þátt í, allt frá metnaðarfullum rannsóknaverkefnum og grænum orkulausnum í fjármögnun loftslagsverkefna í þróunarríkjunum og verkefni sem unnin eru á norðurskautssvæðunum.

Ringulreiðin á ráðstefnunni hafði þó áhrif á viðburði Norrænu ráðherranefndarinnar. Hertar öryggiskröfur Sameinuðu þjóðanna seinni viku ráðstefnunnar ásamt brotalöm í skipulagi og framkvæmd hamlaði aðgangi fulltrúa skráðra stofnana og leiddi til langra biðraða fyrir utan ráðstefnuhöllina. Norræna ráðherranefndin kaus því að fella niður hliðarviðburð og taka niður kynningarbás sinn áður en ráðstefnunni lauk.

„Þegar á heildina er litið var norrænt loftslagssamstarf vel sýnilegt á ráðstefnunni. En hertar öryggiskröfur og brotalöm skipulagi af hálfu hjáSameinuðu þjóðanna, torvelduðu því miður kynningarstarfið, einnig hjá okkur" segir Karin Arvidsson, yfirmaður upplýsinga- og samskiptadeildar Norrænu ráðherranefndarinnar.

Nánar um norræna viðburði á ráðstefnunni; COP15