Document Actions

Rúmlega 60 tilnefningar til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs

63 keppa um Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2009. Rúmlega helmingur tilnefninga kemur að þessu sinni frá Svíþjóð. Meðal þeirra sem tilnefndir eru, eru meðal annars Sænska vistferðafélagið, Náttúru- og umhverfissamtökin í Finnlandi, Ferðafélag Íslands og danska skólaverkefnið; skógurinn í skólanum.

26/06 2009

Umhverfisverðlaunin, sem eru 350.000 danskra króna, verða nú veitt í fimmtánda sinn. Verðlaunin verða veitt norrænu fyrirtæki, samtökum eða einstaklingi sem á einstakan hátt hefur stuðlað að góðu fordæmi við að fá fólk til að stunda útivist og sem hefur aukið skilning á þýðingu náttúrunnar og fyrir andlegt og líkamlegt heilbrigði.

Flestar tilnefningar eða 35 koma að þessu sinni frá Svíþjóð. Tíu tilnefningar eru frá Finnlandi, átta frá Íslandi, sjö frá Danmörku, ein frá Noregi og ein frá Álandseyjum. Tvær tilnefningar eru í raun norrænar, norræna sendinefndin í evrópska tengslanetinu Cost Action E39 og norrænu skátasamtökin. Engar tilnefningar bárust frá Grænlandi og Færeyjum í ár.

Nokkrir þeirra sem tilnefndir eru halda áfram í aðra umferð.  Dómnefnd ákveður hver hlýtur verðlaunin og tilkynnir það á fundi sem haldinn verður á Íslandi í byrjun október. Verðlaunin verða síðan afhent á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í lok október.

Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fjórum verðlaunum Norðurlandaráðs, önnur verðlaun eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndir og tónlist. Íslenska fyrirtækið Marorka hlaut umhverfisverðlaunin í fyrra.