Document Actions

Rússar áhugasamir um Norrænu blaðamannamiðstöðina

13 rússneskir kennarar í blaðamennsku eru á ferð um Norðurlöndin þessa dagana í þeim tilgangi að kynna sér blaðamannaháskóla og menntun norrænna kollega sinna. Ferðin er styrkt af mannaskiptaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar.

05/02 2009

Á miðvikudag heimsóttu 13 kennarar í blaðamennsku og fjölmiðlun Norrænu blaðamannamiðstöðina í Árósum. Þar skoðuðu þeir aðstæður og skiptust á skoðunum við norræn starfssystkini.

Heimsókninni í Blaðamanna- og fjölmiðlaskólann í Árósum lauk með heimsókn til Update og Norræna blaðamannaskólans.

Námsferðin er styrkt af mannaskiptaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar, sem styrkir mannaskipti milli Norðurlandanna, Eystrasaltsríkjanna og Norðvestur-Rússlands.

Heimild: NCJ