Sænskur vísindamaður hlýtur norræn líforkuverðlaun
Göran Berndes dósent frá Svíþjóð er handhafi líforkuverðlauna Norrænu ráðherranefndarinnar. Þau nema jafnvirði 50.000 danskra króna og fylgir þeim viðurkenningarskjal. Verðlaunin eru veitt einstaklingi eða samtökum sem hafa lagt mikið af mörkum til að auka notkun eða framleiðslu á líforku.
Göran Berndes
Andreas Carlgren umhverfisráðherra Svíþjóðar afhenti Berndes verðlaunin á orkuþingi í Stokkhólmi þriðjudaginn 16. mars.
Berndes rannsakar orkukerfi, jarðnotkun og tengsl þessara og annarra þátta. Hann hefur sérhæft sig í rannsóknum á því hvernig nota má lífefnamassa þannig að loftslagsáhrif af orkuframleiðslu verði sem minnst, og einnig áhrif mikillar notkunar á lífefnamassa við orkuframleiðslu.
Berndes, sem er þriðji handhafi verðlaunanna, var staddur á Nýja Sjálandi þegar hann fékk fréttirnar.
-Ég var á hótelherbergi mínu og las IPCC-skýrslu og undirbjó mig undir að flytja fyrirlestur. Símtalið hleypti í mig miklum krafti - ég var bæði hissa og glaður, segir Berndes, en hann starfar við orku- og umhverfisstofnun Chalmers tækniháskólans.
Í rökstuðningi sínum leggur dómnefndin áherslu á að Berndes hafi verið iðinn við að markaðssetja norræna líforkutækni á alþjóðavettvangi
-Berndes tekur virkan þátt í alþjóðlegum rannsóknum i, sem vísindamaður og ráðgjafi. Hann hefur unnið að því að sýna hvernig norræna líkanið með áherslu á stóraukna notkun á líforku getur fallið að metnaðarfullum umhverfisverndar- og þjóðhagslegum markmiðum, segir dómnefndin.
Berndes er meðal annars í forsvari fyrir alþjóðlegu tengslaneti sérfræðinga um framleiðslu lífefnaeldsneytis innan IEA Bioenergy. Tengslanetið, sem nær einnig til norrænu ríkjanna, mun á næstu þremur árum vinna að ýmsum úrlausnarefnum við þróun líforku.
Norrænu matvæla-, sjávarútvegs-, landbúnaðar-, og skógræktarraáðherrarnir samþykktu árið 2006 að setja á stofn norræn líforkuverðlaun. Norðmaðurinn Erik Eid Hohle hlaut þau árið 2007 og Finninn Dan Asplund árið 2008.
Tengiliðir
Mads Randbøll Wolff
Sími
+45 33 96 02 56
Tölvupóstur
mrw@norden.org
Göran Berndes,
Docent,
Chalmers Tekniska Högskola
+46 31 772 31 48
goran.berndes@chalmers.se
