Document Actions

Samar stofni ríki

30/06 2005

Barbro Sundback fulltrúi Álandseyja í Norðurlandaráði lagði til á Barentsþingmannaráðstefnunni á fimmtudaginn að samar stofni sjálfstætt ríki. Að samar í Svíþjóð, Noregi og Finnlandi sameinist og stofni sjálfstætt ríki er eðlilegt framhald á sáttmála Norðurlandanna fyrir sama, sagði Barbro Sundback. Með einni aðgerð er þannig hægt að sameina hefðir, vernda staðbundnar venjur og tungumál og losna við baráttuna gegn meirihlutanum.

Sven Roald Nystø, forseti norska samaþingsins þakkaði fyrir tillöguna en sagði að þetta væri ekki á dagskrá eins og stendur. Hann gagnrýndi einnig Norðurlandaráð fyrir að samarnir skuli ekki vera fullgildir aðilar að ráðinu heldur einungis áheyrnaraðilar.

Til þess að við getum verið nýtir samfélagsþegnar og haft áhrif á pólitíska ákvarðanatöku verðum við að fá að taka þátt á jafnréttisgrundvelli, sagði Nystø sem einnig vill að rússneskir samar fái aukna aðstoð.

Anni Mari Thomassen, sem einnig situr á samaþinginu, lagði til í ræðu sinni að rússneskir samar fengju úthlutað aðgangi fyrir ákveðinn fjölda nemenda ár hvert í æðri menntastofnunum í Rússlandi.