Document Actions

Sameiginleg stefna í öryggismálum fyrir sjálfbær Norðurlönd Kröftug og sjálfbær Norðurlönd þarfnast sameiginlegrar stefnu um öryggismál og viðbúnað.

Auk umræðna um norrænt utanríkis- og varnarsamstarf var í þemaumræðum Norðurlandaráðs í Stokkhólmi lögð mikil áhersla á tengingu stefnu í öryggismálum við sjálfbært samfélag.

11/04 2013

Carl Hagelund, varnarmálaráðherra Finnlands, formaður NORDEFCO þetta árið. Ljósmynd: Magnus Fröderberg/norden.org

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/Norden.org

Þeir ráðherra sem boðið var, Carl Hagelund, varnarmálaráðherra Finnlands og Karin Enström starfssystir hans frá Svíþjóð, Espen Barth Eide utanríkisráðherra Noregs og Erkki Tuomija utanríkisráðherra Finnlands voru allir sammála um mikilvægi óformlegs norræns samstarfs um utanríkis-, varnar- og öryggismál. Það á eins og hingað til að byggja á efnahagslegri hagræðingu og einkennast af praktískri hugsun og raunsæi. Jafnframt ræddi Carl Hagelundum framtíðarsýn fyrir samstarfið og Espen Eide lýsti eftir sameiginlegri hugmynd að varnarstarfinu.

„Saman erum við stórt landfræðilegt svæði og strjálbýlt“, sagði norski utanríkisráðherrann og taldi að þessi staðreynd gæti verið grundvöllur norræna lausna.

Þingmennirnir Helgi Hjörvar og Høgni Hoydal frá Færeyjum voru meðal þeirra sem ræddu um stóru landsvæðin á norðurskautssvæðinu og þörfina á að ræða spurninguna um samfélagsöryggi á breiðari grundvelli.  Öryggi á sjó á norðurskautssvæðinu er mikilvægt málefni fyrir Norðurlandaráð, rétt eins og aðrar ógnir sem steðja að íbúum norðurskautssvæðisins vegna loftslagsbreytinganna.

„Á hafsvæðum við strendur Íslands bíða óhöppin eftir að gerast“, sagði Helgi Hjörvar og hvatti til fyrirbyggjandi norrænna aðgerða.

Manu Sareen, samstarfsráðherra Danmerkur varaði við því að þora ekki að tala um öryggisvá á norðurskautssvæðinu.  Margir hafa sýnt þeim náttúruauðlindum áhuga sem nú eru að koma í ljós vegna bráðnunar íshettunnar. Enginn vill ósætti eða átök, að hans mati, og þess vegna verður að ræða hvernig hægt er að taka tillit til umhverfislegra þátta og öryggismála á svæðinu.

Hið svokallaða Haga-samkomulag milli ráðherra sem fara með viðbúnaðarmál á Norðurlöndum verður uppfært í haust. Í bréfi fer forsætisnefnd Norðurlandaráðs fram á að samkomulagið skuli innihalda grein um að rætt verði við Norðurlandaráð um málið.

„Það ætti að stuðla að nauðsynlegri þingræðislegri, þ.e.a.s. almennri tengingu öryggis- og viðbúnaðarstefnunnar“, samkvæmt Marit Nybakk forseta Norðurlandaráðs.

Tengiliðir

Bodil Tingsby
Sími +45 33 96 03 57
Tölvupóstur bot@norden.org