Document Actions

Samkeppni: Auglýst eftir hagnýtum lausnum á loftslagsvandanum

Býr stofnun þín yfir hagnýtum lausnum sem sveitarfélög og aðrir svæðisbundnir framkvæmdaaðilar geta nýtt til að vinna gegn loftslagsbreytingunum? Sambönd Sveitarfélaga í Finnlandi, Noregi og Svíþjóð standa, í samstarfi við Norrænu ráðherranefndina, fyrir alþjóðlegri samkeppni með það að markmiði að laða fram nýja þekkingu sem enn hefur ekki verið nýtt, vinnuaðferðir og tækni sem nýta má í baráttunni gegn loftslagsbreytingum.

Jun 21, 2010
Lampe
Ljósmyndari
Ane Cecilie Blichfeldt

Samkeppnin er fyrst og fremst ætluð stofnununum, fyrirtækjum og sveitarfélögum á Norðurlöndum og Eystrasaltssvæðinu. Verðlaun verða veitt á norrænu sjálfbærniráðstefnunni sem haldin verður í Åbo í Finnlandi í lok janúar og byrjun febrúar 2011. Verðlaunin felast í kynningu, tengingu við væntanlega viðskiptavini og markaðsetningu á lausnum.

Með samkeppninni er miðað að því að vekja athygli á loftslagsbreytingunum, styrkja staðbundið og svæðisbundið efnahagslíf, fjölga störfum og almenna velferð auk þess að leiða til breytinga á lífsháttum íbúa og í stjórnsýslu sveitarfélaga.

Norræna ráðherranefndin fjármagnar samkeppnina að mestu. Meðal samstarfsaðila eru Norræna nýsköpunarmiðstöðin (NICe), Norræni fjárfestingabankinn (NIB) og Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO).

Lokafrestur til að skila hugmyndum í samkeppnina er 30. september.

Nánari upplýsingar um samkeppnina

Sjálfbærniráðstefnan í Åbo

Tengiliðir

Mia Rahunen
Sími +45 33 96 02 61
Tölvupóstur mira@norden.org

Jonas Rorarius, Sambandi sveitarfélaga í Finnlandi, tfn +358 (0)9 771 2368, jonas.rorarius@kommunforbundet.fi