Document Actions

Samningur gerður við Macao, sjálfstjórnarsvæði alþýðulýðveldisins Kína, til að stemma stigu við skattaundanskotum

Danmörk, Finnland, Noregur, Svíþjóð, Ísland og sjálfstjórnarsvæðin Grænland og Færeyjar undirrituðu á föstudag samning við Macao, sjálfstjórnarsvæði alþýðulýðveldisins Kína, um gagnkvæm upplýsingaskipti. Samkomulagið er árangur umfangsmikils starfs sem unnið hefur verið að á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar og miðar að því að stöðva skattaundanskot.

29/04 2011

Norðurlöndin og Macao SAR (Special Administrative Region) undirrituðu samning um að stöðva skattaflótta á föstudaginn.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Samningurinn veitir norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um skattskyldar innstæður og tekjur og getur því leitt í ljós hvort tekjum og fjármagni er komið undan og ekki gefið upp til skatts í heimalandinu.

Verkefnið hefur vakið mikla athygli innan OECD (Organisation for Economic Co-operation and Development) og stuðlað að því að styrkja stöðu Norðurlanda á alþjóðlegum fjármálamarkaði.

Frá því að samningaviðræður hófust við svokölluð aflönd á vordögum  2007 hafa Norðurlönd gert samninga um gagnkvæm upplýsingaskipti við Andorra, Anguilla, Antíku og BarbudaArúba, Bahama eyjar, Belís, Bermúda, Bresku Jómfrúareyjarnar, Caymaneyjar, Cook eyjar, Dominíku, Gíbraltar, GrenadaGuernsey, Eyjuna Mön, Jersey, Liberíu, Marshalleyjar, Mónakó, MontserratHollensku AntillaeyjarnarSamóa, San Marínó, SeychellernaSt. Kitts & Nevis, St. LuciaTurcs og CaicoseyjarSt. Vincent og Grenadin og Vanuatu.

Þegar Norðurlöndin gera samning um upplýsingaskipti þarf þjóðþing hvers ríkis fyrir sig að staðfesta hann því slíkir samningar eru tvíhliða.

Upplýsinasamningurinn við Macao SAR verður undirritaður föstudaginn 29. apríl 2011 við hátíðlega athöfn í danska sendiráðinu í París.

Yfirlit yfir samninga um skattaupplýsingaskipti

Nánari upplýsingar um samninga gegn skattaflótta

Tengiliðir

Torsten Fensby, verkefnisstjóri, Norrænu ráðherranefndinni, sími +33678251289