Samningur til að koma í veg fyrir skattaundanskot undirritaður við Barbados
Síðastliðin fimmtudag undirrituðu norrænu ríkin upplýsingaskiptasamning um skattamál við Barbados. Hann er liður í herferð gegn alþjóðlegum skattaundanskotum og eitt af verkefnum Norrænu ráðherranefndarinnar.
Samningurinn kveður á um upplýsingaskipti um skattamál og gefur norrænum stjórnvöldum kleift, í samstarfi við stjórnvöld á Barbados, að fá upplýsingar um einstaklinga sem reyna að komast hjá því að greiða skatta af tekjum sínum og fjárfestingum. Samningurinn auðveldar þannig stjórnvöldum að afla upplýsinga um tekjur sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandinu.
Samningurinn er tvíhlíða vegna ákvæða í stjórnarskrám landanna og hann þarf að staðfesta af þjóðþingum landanna.
Samningurinn var undirritaður fimmtudaginn 3. nóvember 2011. Í október undirrituðu norrænu ríkin auk þess upplýsingaskiptasamning við Bahrain.
Nánari upplýsingar um samninga gegn skattaundanskotum
Torsten Fensby,
Verkefnisstjóri
Norrænu ráðherranefndinni
+33 678 251 289
