Document Actions

Samningur til að sporna gegn skattaundanskotum til Bahamaeyja

Á miðvikudag var undirritaður upplýsingaskiptasamningur milli Norðurlanda og Bahamaeyja til að sporna gegn skattaundanskotum. Hann er liður í verkefni á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem á að stuðla að því að koma í veg fyrir skattaundanskot á heimsvísu.

Mar 10, 2010
Flygplats

Fulltrúar Norðurlandanna undirrituðu á miðvikudag upplýsingaskiptasamning við Bahameyjar. Samningurinn er þáttur í norrænu samstarfi um að stöðva skattaundanskot.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

Verkefninu hefur verið vel tekið hjá OECD (Organisation for Economic Co-operation and Development) og styrkt stöðu Norðurlanda á alþjóðavettvangi. Frá því samningaviðræður hófust vorið 2007 hafa norrænu ríkin gert upplýsingaskiptasamninga við Arúba, Andorra, Bahamaeyjar, Bermúdaeyjar, Guernsey, Mön, Jersey, Antillaeyjar, Cayman-eyjar, Bresku Jómfrúreyjarnar, Anguilla, Turcs- og Caicoseyjar, Gíbraltar, Cookeyjar, Samóeyjar og San Marínó. Danir hafa auk þess samið við yfirvöld á St. Lucia, St. Vincent og Grenadin, St. Kitts og Nevis auk Antigua og á Barbuda.

Samningurinn veitir norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um skattskyldar innstæður og tekjur og mögulegan aðgang að tekjum og fjármagni sem ekki hefur verið gefið upp til skatts í heimalandinu.

Af stjórnarskrárástæðum eru samningarnir tvíhliða. Allir upplýsingaskiptasamningar af þessu tagi sem norrænu ríkin gera, fara síðan til umfjöllunar í þingum landanna.

Samningurinn var undirritaður við athöfn í sendiráði Danmerkur í París miðvikudaginn 10. mars.

Yfirlit um samninga um upplýsingaskipti á sviði skattamála

Nánar um samninga gegn skattaundanskotum

Tengiliðir

Torsten Fensby, verkefnisstjóri, Norrænu ráðherranefndinni +33 678 251 289