Document Actions

Samningur undirritaður um stöðvun skattaundanskota til Úrúguay

Danmörk, Svíþjóð, Noregur og Ísland ásamt Grænlandi og Færeyjum undirrituðu upplýsingaskiptasamning um skattamál við Úrúguay miðvikudaginn 14. desember. Hann er liður í herferð Norðurlandanna gegn alþjóðlegum skattaundanskotum og eitt af verkefnum Norrænu ráðherranefndarinnar.

14/12 2011
Ekonomi
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Upplýsingaskiptasamningurinn veitir skattayfirvöldum aðgang að gögnum um alla einstaklinga sem reyna að komast hjá því að greiða skatta af tekjum og fjárfestingum. Jafnframt mun samningurinn stuðla að því að upplýsa um tekjur sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandinu.

Norðurlöndin eru ásamt öðrum ríkjum, m.a. Frakklandi og Bandaríkjunum þau ríki í heiminum sem gert hafa flesta slíka upplýsingaskiptasamninga um skattamál. Samningurinn sem undirritaður var í dag er númer 36 í röðinni og er hann tvíhlíða vegna ákvæða í stjórnarskrám og fjalla þarf um þá í þjóðþingum landanna áður en hann tekur gildi.

Norðurlöndin munu halda áfram baráttu sinni gegn alþjóðlegum skattaflótta á árinu 2012 og er reiknað með að sameiginlegar aðgerðir muni leiða til enn fleiri samninga.

Samningarnir voru undirritaðir 14.desember 2011 við hátíðlega athöfn í sendiráði Danmerkur í París. Finnland sem einnig tekur þátt í verkefninu mun undirrita samkomulag um skattamál við Úrúguay seinna.

Torsten Fensby
Sími +33 678 251 289

Nánari upplýsingar um samninga gegn skattaflótta

Tengt efni
  • Norræna ráðherranefndin um efnahags- og fjármálastefnu (MR-FINANS) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um efnahags- og fjármál er stjórnað af norrænu fjármálaráðherrunum, sem mynda ráðherranefndina MR-FINANS. Samstarfinu er ætlað að gæta norrænna hagsmuna á alþjóðavettvangi og stuðla að efnahagslegri samættingu á alþjóðavettvangi.

  • Avtal mot skatteflykt (Verkefni)

    Nordiskt samarbete om ingående av informationsutbytesavtal på skatteområdet med finansiella offshorecentra