Miðvikudaginn 27. júní undirrituðu norrænu ríkin: Svíþjóð, Danmörk, Noregur,Finnland og Ísland ásamt Grænlandi og Færeyjum upplýsingaskiptasamning við Brunei.
Samningurinn um gagnkvæm upplýsingaskipti veitir norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla einstaklinga sem reyna að komast hjá skattgreiðslum af tekjum og fjárfestingum og stuðlar að því að gögn finnist um tekjur sem ekki eru gefnar upp í heimalandinu.
Samningurinn er tvíhlíða vegna ákvæða í stjórnarskrám og fjalla þarf um þá í þjóðþingum landanna.
Samningarnir voru undirritaðir miðvikudaginn 27. júní við hátíðlega athöfn í sendiráði Íslands í París.
Torsten FensbySími +33 678 251 289