Document Actions

Samningur við Vanuatu stöðvar skattaundanskot

Á miðvikudag undirrituðu fulltúrar norrænu ríkjanna samkomulag um upplýsingaskipti við Vanuatu. Samkomulagið er gert í kjölfar umfangsmikillar vinnu á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar sem miðar að því að stöðva skattaundanskot frá Norðurlöndum.

13/10 2010
Nordiska flaggor

Norðurlöndin hafa undirritað samkomulag við Vanuatu til að koma í veg fyrir skattaflótta. Ljósmyndari: Johannes Jansson/norden.org

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

 

 

 

Frá því að samningaviðræður hófust vorið 2007 hafa norrænu ríkin gert samkomulag um upplýsingaskipti við Andorra, Antíku og Barbúda, Arúba, Bahamas eyjar, Bermuda, Dominikua, Grenada, Guernsey, Isle of Man, Jersey, Mónakó, Hollensku Antillaeyjarnar, Cayman eyjar, Bresku Jómfrúareyjarnar, Anguilla, Turcs and Caicos eyjar, Gíbraltar, Grenadíneyjar , Cook eyjar, Samóaeyjar, St. Vincent, St. Kitts och Nevis, San Marino, og St. Lucia.

Samkomulagið veitir skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla einstaklinga sem reyna að komast hjá því að greiða skatta af tekjum og fjárfestingum, og mun þannig stuðla að því að upplýsa um  innistæður  sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandi.

Verkefnið hefur vakið mikla athygli í OECD (Efnahags- og framfarastofnun Evrópu) og mun verða til þess að styrkja stöðu norrænu ríkjanna á þessu sviði  á alþjóðavettvangi.

Samkomulagið er gert tvíhliða við hvert norrænu ríkjanna vegna þess að kveðið er á um það í stjórnarskrám að samþykkja þurfi þá á þjóðþingunum.

Samkomulagið var undirritað miðvikudaginn 13. október  2010 við hátíðlega athöfn í finnska sendiráðinu í Canberra.

Tengill: Torsten Fensby, verkefnisstjóri, Norrænu ráðherranefndinni

Sími +33 678 251 289

Yfirlit yfir samninga um upplýsingaskipti

Nánar um samninga til að koma í veg fyrir skattaflótta

 

 

Tengt efni
  • Avtal mot skatteflykt

    Nordiskt samarbete om ingående av informationsutbytesavtal på skatteområdet med finansiella offshorecentra