Document Actions

Samnorræn sjónvarpsútsending af afhendingu verðlauna Norðurlandaráðs

Tilkynningu og afhendingu verðlauna Norðurlandaráðs verður sjónvarpað til allra Norðurlandanna þann 30. október.

27/05 2013
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Þetta verður í fyrsta sinn sem tilkynnt verður hverjir hljóta verðlaun Norðurlandaráðs um leið og verðlaunaafhending fer fram. Haldin verður stór verðlaunahátíð í óperuhúsinu í Ósló þann 30. október. Sjónvarpsáhorfendur alls staðar á Norðurlöndum eiga þess kost að fylgjast með þegar tilkynnt verður hverjir hljóta verðlaun fyrir bókmenntir, tónlist, kvikmyndir, umhverfisvernd og nýju verðlaunin fyrir barna- og unglingabókmenntir.

Norska ríkissjónvarpið NRK sér um og sendir út verðlaunaathöfnina í samstarfi við Norðurlandaráð. Með þessu móti verða verðlaunin kynnt enn fleirum en áður:

„Það hefur lengi verið á óskalista okkur að færa verðlaun Norðurlandaráðs nær nútímanum og að ná til alls almennings. Með þessari „Óskars" verðlaunaathöfn erum við að gera tilkynningu og verðlaunaathöfnina faglegri og von okkar er að með þessu fái verðlaunaathöfn Norðurlandaráðs enn meiri athygli en fyrr" segir Marit Nybakk, forseti Norðurlandaráðs.

Verðlaun Norðurlandaráðs eru afhent ár hvert á Norðurlandaráðsþingi. Nýlunda er að nafn verðlaunahafanna verður ekki tilkynnt fyrr en á sjálfri verðlaunaafhendingunni. Öllum sem tilnefndir eru til verðlauna Norðurlandaráðs er boðið á verðlaunaathöfnina og reiknað með að um 1.000 manns verði í norska óperuhúsinu.

Verðlaun Norðurlandaráðs eru 350.000 danskar krónur, auk þess að nú fá þeir í fyrsta sinn einnig verðlaunagrip, sem verður eins fyrir öll fimm verðlaunin. Nýi verðlaunagripurinn verður afhentur í fyrsta sinn á verðlaunaafhendingunni í Ósló þann 30. október 2013. Norska ríkissjónvarpið, NRK, sendir beint frá verðlaunaafhendingunni ásamt ríkissjónvarpsstöðvum hinna Norðurlandanna.

Tengiliðir

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími +45 33 96 03 55
Tölvupóstur jsk@norden.org

Sølvi Brun
Sími +47 23 31 36 02
Tölvupóstur solvi.brun@stortinget.no

Tengiliður hjá NRK. Ingerid Nordstrand, framleiðandi NRK menningardeild, sími: +47 99603903