Document Actions

Samstarf frjálsra félagasamtaka. Nú er hægt að sækja um norræna styrki

Á hverju vori er að sækja um verkefnastyrki hjá áætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök. Krafa er gerð um að a.mk. þrjú frjáls félagasamtök taki þátt í verkefninu og að ein samtök séu norræn, ein frá Rússlandi, Hvíta-Rússlandi, Póllandi eða Eystrasaltsríkjunum.

01/03 2011
Heiagjeng
Ljósmyndari
Karin Beate Nøsterud/norden.org

Umsóknarfrestur er 11. apríl 2011.

Krafa er gerð um að verkefnin skipti máli fyrir Rússland eða Hvíta-Rússland, en að öðru leiti eru ekki gerðar sértækar kröfur um verkefni sem styrkt eru. Engin hámarks- eða lágmarksstyrkupphæð er gefin upp, en árið 2009 námu styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar til verkefna að jafnaði 400 til 500 þúsund dönskum krónum.

Umsækjendur eiga að vera frjáls félagasamtök með lýðræðislega kjörna stjórn og frjálsa félagsaðild. Verkefnin skulu efla starf frjálsra félagasamtaka, sérstaklega í Norðvestur-Rússlandi og Hvíta-Rússlandi.

Norræna ráðherranefndin setti áætlunina fyrir frjáls félagasamtök á laggirnar árið 2006 með það að markmiði að auka samstarf frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum, í Eystrasaltsríkjunum, Póllandi og Hvíta-Rússlandi. Síðan hafa rúmlega 50 verkefni verið styrkt um rúmlega 30 milljónir danskra króna. Verkefnin ná til umhverfisverndar, umönnun barna og jaðarhópa og lýðræðisuppbyggingar.

Starfsemi frjálsra félagasamtaka hafa mikla þýðingu í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland og það á fjölmörgum sviðum eins og til að mynda við lýðræðisuppbyggingu og umhverfisvernd.

Nánari upplýsingar um áætlunina um frjáls félagasamtök og umsóknareyðublöð

Tengiliðir

Fredric Larsson
Sími +45 33 96 03 27
Tölvupóstur frla@norden.org

Tengt efni
  • Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu

    Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.

  • Hur man ansöker om finansiering: NGO-programmet

    En årlig budget på cirka 5 miljoner danska kronor har öronmärkts för Nordiska ministerrådets program för NGO:er i Östersjöområdet (NGO-programmet). NGO:er bjuds in att ansöka om finansiering från programmet för internationella samarbetsprojekt. De sökande bör läsa NGO-programmet innan de skickar in en ansökan om finansiering.

  • Norrænt verkefni kemur ungum afbrotamönnum á rétta braut (News Item)

    Átta ungir afbrotamenn frá Norðvestur-Rússlandi á aldrinum 15 til 17 ára hafa hafið nám og tveir hafa fengið atvinnu. Það er eitt af því sem kom út úr tilraunaverkefni á vegum Juvenlie Justice, sem er eitt af mörgum verkefnum sem Norræna ráðherranefndin vinnur með frjálsum félagasamtökum (NGO) í ríkjunum við Eystarsalt.