Samstarf norðlægu víddarinnar er til eftirbreytni
Náið samstarf ríkja á Norðurskauts-, Barents- og Eystrasaltssvæðunum er til eftirbreytni fyrir önnur svæði í heiminum, sagði Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs á annarri þingmannaráðstefnu norðlægu víddarinnar sem haldin var í Tromsö dagana 22.-23. febrúar. Samstarfið er öðrum heimshlutum til vitnis um að friðvænlegt sé á norðurskautssvæðunum, segja stjórnmálamenn sem sátu ráðstefnuna.
Samstarf okkar sendir þau skilaboð til umheimsins að Norðurskautið sé friðsamlegt svæði þar sem alþjóðalög eru virt, sagði Dag Terje Andersen, forseti norska þingsins, í setningarræðu sinni á þingmannaráðstefnu norðlægu víddarinnar.
- Ljósmyndari
- Karin Beate Nøsterud/norden.org
Við setningu annarrar þingmannaráðstefnu norðlægu víddarinnar í Tromsö í vikunni fjallaði Espen Barth Eide, utanríkisráðherra Noregs, um kosti samstarfs ESB, Rússlands, Íslands og Noregs innan norðlægu víddarinnar.
- Norðlæga víddin stuðlar að samþættingu innan Evrópu og þingmannavettvangurinn styrkir samstarfið með því að tengja alla helstu hagsmunaaðila á svæðinu, sagði hann.
- Við höfum búið til samstarfsvettvang sem mætti flytja út til annarra heimshluta. Ef við lítum t.d. til Austur-Asíu má sjá að ríkin þar eru jafn nátengd og við í okkar heimshluta, en þar skortir stofnanaramma til þess að tryggja samþættingu og samstarf þvert á landamæri til hagsbóta fyrir alla, bætti hann við.
Auk ESB og ríkjanna þriggja sem eiga aðild að samstarfinu, taka þátt í samstarfsvettvangnum m.a. Norðurlandaráð, Vestnorræna ráðið, Eystrasaltsráðið, þingmannaráðstefnu Eystrasaltsríkjanna og þingmannaráðstefnu Barentsríkjanna, auk fulltrúar frumbyggja ánorðurslóðum.
Norska þingið var gestgjafi þessarar þingmannaráðstefnu. Fyrsta ráðstefna þingmanna var í boði Evrópuþingsins árið 2009 og sú næsta, árið 2013, verður í boði rússnesku Dúmunnar.
- Norðlæga víddin nær til landsvæða frá Eystrsaltinu til norðurskautsins og er gott jafnvægi samstarfinu. Það sendir þau skilaboð til umheimsins að Norðurskautið sé friðsamlegt svæði þar sem alþjóðalög eru virt, sagði Dag Terje Andersen, forseti norska þingsins í setningarræðu sinni.
Samstarf innan norðlægu víddarinnar var komið á fót á árinu 2006 af ríkisstjórnum Noregs, Íslands, Rússlands og framkvæmdastjórnar ESB. Hvíta-Rússland, Kanada og Bandaríkin eru áheyrnaraðilar.
Samstarfið nær til fjögurra meginþátta: Umhverfismála, heilbrigðis- og félagsmála, samgangna og innviða og menningarmála.
Markmið þingmannaráðstefnu norðlægu víddarinnar er að styðja við og efla samstarf á þessum fjórum sviðum.
Sjá yfirlýsingu frá ráðstefnunni til ríkisstjórna aðildarríkja norðlægu víddarinnar.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
