Document Actions

Samstarfsráðherra Svía: Eflum norrænt samstarf í ESB

Norðurlöndin eiga að efla samstarf sitt á vettvangi ESB. Þetta segir Ewa Björling samstarfs- og viðskiptaráðherra Svía.

02/11 2010
Reykjavik

Reykjavík

Ljósmyndari
Sigurður Ólafsson/norden.org

-Norrænu ríkin eiga margt sameiginlegt í sambandi við hnattvæðingu, samþættingu og samstarf á sviði ferðaþjónustu bendir Björling á og segir að hún vilji aukið norrænt samstarf á vettvangi ESB.

Björling situr Norðurlandaráðsþing sem hefst á þriðjudag í Reykjavík.

Samstarfsráðherrann mun meðal annars hitta aðra ráðherra og sitja fyrir svörum í fyrirspurnatíma þingsins. Meðal mikilvægra málefna sem fjallað verður um á þinginu er afnám stjórnsýsluhindrana milli norrænu ríkjanna og stefnan í norræna samstarfinu fram til ársins 2020.

Þá munu norrænu viðskiptaráðherrarnir halda fund þann 3.nóvember. Á dagskrá fundarins verða innri markaður ESB og Dohafundurinn.

62. Norðurlandaráðsþing stendur yfir í Reykjavík dagana 2.-4. nóvember

Tengiliðir

Silje Bergum Kinsten
Sími +45 33 96 02 51
Tölvupóstur siki@norden.org