Sex tilnefndir til Umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs
Grænir bankar keppa um Náttúru- og umhverfisverðlaun Norðurlandaráðs árið 2010. Af þeim fimmtán sem komust í úrslit í fyrstu umferð hafa sex verið valdir til að halda áfram í keppninni um verðlaunin, flestir eru þeir fjármálastofnanir. Þrír bankanna eru norskir (Storebrand, KLP og Cultura Sparbank), tveir sænskir (Ekobanken, GES Investment Services) og einn danskur (Merkur Andelskasse).
Umhverfisverðlaunin, sem nema andvirði 350.000 danskra króna, verða veitt í 16. sinn á þessu ári og er græn fjármagnsstjórnun þema verðlaunanna að þessu sinni. Verðlaunin árið 2010 verða veitt fyrirtæki, samtökum, fjölmiðli eða einstaklingi sem hefur verið öðrum fyrirmynd við að hafa áhrif á, beint eða óbeint, á fjármálamarkaðinn, fjármögnunariðnaðinn, banka eða ráðgjafa með það að markmiði að gera fjármögnunarstjórnun sjálfbæra til framtíðar.
Dómnefnd Umhverfisverðlaunana velur og kynnir verðlaunahafann á fundi sínum í Kaupamannahöfn 25. – 26. maí. Verðlaunin verða afhent á Norðurlandaráðsþingi í Reykjavík í haust.
Náttúru- og umhverfisverðlaunin eru ein af fernum verðlaunum Norðurlandaráðs, hin eru veitt fyrir bókmenntir, kvikmyndagerð og tónlist. Árið 2009 hlaut sænska verkefnið „I Ur och Skur“ verðlaunin, en það byggir á hugmyndum um útivist og útikennslu í leik- og grunnskólum.
Skrifstofa Umhverfisverðlaunanna er í danska þinginu í Kristjánsborgarhöll í Kaupmannahöfn. Sendinefnd Danmerkur í Norðurlandaráði hefur umsjón með verðlaununum.
Tengiliðir
Dennis Barndorph Lind
Sími
+ 45 3337 3836
Tölvupóstur
dennis.lind@ft.dk
