Sífellt fleiri Íslendingar stunda háskólanám
Ísland hefur á örfáum árum farið fram úr Danmörku og Noregi og náð Svíþjóð hvað varðar fjölda ungs fólks í háskólanámi. Árið 2000 voru um 10,5 prósent Íslendinga á aldrinum 20 til 40 ára í háskólanámi. Árið 2004 var hlutfallið orðið 15 prósent. Á örfáum árum hefur Ísland farið fram úr Danmörku og Noregi og náð Svíþjóð hvað varðar fjölda námsmanna í háskólanámi sem hlutfall af íbúafjölda.
Finnland er þó enn í fararbroddi meðal norrænna ríkja hvað þetta varðar. Um 19 til 20 prósent Finna stunda háskólanám hverju sinni. Danmörk er hins vegar í neðsta sæti á Norðurlöndum.
Miðað við önnur norræn ríki hafa tiltölulega margir Íslendingar valið að stunda nám innan félagsvísinda, hagvísinda og lögfræði.
Tiltölulega margir Íslendingar stunda einnig nám erlendis. Nær helmingur þeirra stundar nám í öðru ríki Norðurlanda, flestir í Danmörku. Segja má að frá þessum sjónarhóli sé Ísland norrænast norrænu ríkjanna.
Íslensku námslánin eru hærri en sú námsaðstoð sem veitt er annars staðar á Norðurlöndum. Á hinn bóginn veita hin ríkin hluta námsaðstoðarinnar í formi styrkja sem ekki þarf að endurgreiða.
Þessar upplýsingar koma fram í Norrænum hagtölum 2006, sem koma út miðvikudaginn 25. október. Bókin kostar 3.695 krónur.
Hagtölurnar sýna meðal annars þróun íslensks efnahagslífs, vaxta, gengis verðbréfa og viðskiptahalla. Vöxtur vergrar þjóðarframleiðslu á Íslandi hefur verið hærri en í öðrum norrænum ríkjum og rúmlega tvisvar sinnum meiri en meðaltalsvöxturinn annars staðar í Vestur-Evrópu. Einungis í Noregi eru meðaltekjur á íbúa miðað við verga þjóðarframleiðslu hærri en á Íslandi.
Bókin, sem er 344 blaðsíður, er seld í bókabúð Máls og menningar, Laugavegi 18, 101 Reykjavík, sími 515 2500, netfang: books@penninn.is. Einnig er hægt að panta bókina á www.norden.org/order. Nánari upplýsingar veitir Klaus Munch Haagensen, ráðgjafa hjá Norrænu ráðherranefndinni, kmh@norden.org, sími +45 3396 0410 eða Frank Dalgaard, fulltrúa hjá Hagstofu Danmerkur, frd@dst.dk, sími +45 3917 3939 gsm: +45 26 21 67 52.
ATH: Ritstjórnir geta pantað ókeypis eintök af bókinni hjá Johannes Jansson, netfang: jj@norden.org
