Document Actions

Sífellt minni hluti neyðaraðstoðar varið til matarkaupa

Norrænu landbúnaðarráðherrarnir hafa vaxandi áhyggjur af því að stöðugt er minna af alþjóðlegri neyðaraðstoð varið til að koma í í veg fyrir matvælaskort. Samsvarandi þróun hefur, samkvæmt ráðherrunum, verið í útlánavenjum alþjóðlegra lánastofnana. Á sama tíma hafa fjárfestingar einkaaðila í landbúnaði þróunarlandanna verið mjög litlar, skrifa landbúnaðarráðherrarnir í sameiginlegri grein sem birtist á föstudag.

16/10 2009
MR-FJLS sommermøte Isafjördur juli 2009

Sumarfundur norrænu landbúnaðarráðherranna á Íslandi 2009

- Í mörg ár hefur því miður landbúnaður og matvælaframleiðsla fengið stöðugt minna vægi í þróunaraðstoð, skrifa ráðherrarnir í greininni sem birt er í tilefni af baráttudagi Sameinuðu þjóðanna gegn hungri, 16.október.

Ráðherrarnir leggja áherslu á mikilvægi svæðisbundins samstarfs í baráttunni gegn hungri og benda á það árangusríka samstarf sem unnið hefur verið á Norðurlöndum undanfarna áratugi.

- Við stöndum andspænis vandamáli sem ekki er hægt að leysa nema með samstarfi ríkja og svæðasamtaka. . Í 30 ár hafa Norðurlönd byggt upp æ sterkara svæðasamstarf á vettvangi Norrænu ráðherranefndarinnar og unnið að varðveislu og sjálfbærri nýtingu erfðaauðlinda, skrifa ráðherrarnir.

Samstarfið hefur meðal annars leitt til stofnunar NordGen, norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar og til samstarfs við erfðaauðlindabanka í Afríku og Asíu. NordGen ber einnig ábyrgð á rekstri birgðageymslu fyrir plöntufræ á Svalbarða.

Grein ráðherranna birtist dagblöðum meðal annars í Finnlandi, Noregi, Svíþjóð og á Íslandi.

Greinin í finnska dagblaðinu Turun Sanomat

Greinin í sænska dagblaðinu Västerbottens-Kuriren

Greinin í norska dagblaðinu Nationen

Greinin á loftslagsvefnum climate-l.org