Document Actions

Sjálfbær Norðurlönd: Sameiginlegt verkefni?

Skráning á fimmtu norrænu ráðstefnuna um sjálfbærni er hafin. Ráðstefnan verður haldin í Umeå í Svíþjóð í september. Sjónum verður þar beint að því hvernig við í sameiningu getum skapað betra samfélag. En höfum við efni á því á þessum krepputímum?

22/04 2013

Norræna ráðherranefndin tók á síðasta ári þátt í stóru Rio+20 ráðstefnunni um sjálfbærni. Nú verður næsta stóra ráðstefnan haldin á Norðurlöndum, Medskapande 2013.

Ljósmyndari
House of Futures

Norðurlöndin eru höfuðstaður sjálfbærninnar, að mati norrænna borgara og stjórnmálamanna. Og það finnst hagsmunaaðilum og embættismannamönnum frá heiminum öllum, ef marka má alþjóðlegar kannanir og raðanir á lista.

En höfum við tíma og efni á allri þessari sjálfbærni í miðri kreppunni? Og getur norræna líkanið, sem leggur áherslu á samstarf og umræðu, lifað af á tímum átaka jafnt á vinnumarkaði og heimsmarkaði? Eru Norðurlöndin með sértækar lausnir á sameiginlegum úrlausnarefnum okkar?

Skráið þátttöku...

Fimmta ráðstefnan um sjálfbærni sem haldin verður í Umeå dagana 17. - 19. september nefnist „Medskapandets Konst" - eða bara samsköpun og á henni verður sjónum beint að sjálfbærni sem sameiginlegu verkefni.

Eins og á fyrri ráðstefnu í ráðstefnuröðunni, „Lausnir. Nálægt Saman”, sem haldin var í Åbo, Finnlandi árið 2011, verður á ráðstefnunni byggt á þörfinni á því að virkja skapandi krafta í heimabyggð, án þess að áhersla minnki á alþjóðlegt samhengi.

Þema ráðstefnunnar er neysla, heilbrigði og velferð, samgöngur, ferðamál, borgarskipulag og sjálfbær menntun og menning.

Reiknað er með um 600 þátttakendum frá öllum Norðurlöndunum og ESB ríkjunum. Skráning á vefsíðunni medskapande2013.se/

Aðdragandi

Markmiðið með ráðstefnunni er að styrkja og þróa staðbundnar og svæðisbundnar aðgerðir til að auka sjálfbærni á Norðurlöndum.

Ráðstefnan er haldin í samstarfi Umeå sveitarfélagsins, Norrænu ráðherranefndarinnar, umhverfisráðuneytisins í Svíþjóð og bæjarfélaga og landsþinga Svíþjóðar.

Ráðstefnan fer fram á sænsku, ensku og finnsku og túlkað verður á milli þessara þriggja tungumála. Þátttökugjald er 3.500 sænskar krónur án vsk.

Í tengslum við ráðstefnuna verður tilkynnt um verðlaunahafa í samkeppni norræna umhverfismerkisins Svansins Nordic Art Insight, þar sem verðlaunuð verða listaverk, sem auka vitund um sjálfbæra þróun.

Nánari upplýsingar á vefsíðunni medskapande2013.se/

Tengiliðir

Mia Rahunen
Sími +45 33 96 02 61
Tölvupóstur mira@norden.org

Barbro Ruda barbro.ruda@umea.se