Norræna ráðherranefndin situr ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun (CSD-19) í New York í maí næstkomandi. Þar verður kastljósinu beint að framleiðslu og neyslu og áhrifum sjálfbærni á græn hagkerfi. Norrænu ríkin standa fyrir tveimur viðburðum þar sem sérfræðingar í fremstu röð verða frummælendur. Upplýsingar um framlag norrænu ríkjanna eru á nýrri vefsíðu.
Norðurlönd eru leiðandi á sviði sjálfbærrar þróunar.
Árið 2001 kynnti Norræna ráðherranefndin fyrstu svæðisbundnu sjálfbærnistefnu í heiminum. Norrænu ríkin fimm eru efst á fjölmörgum alþjóðlegum listum sem mæla sjálfbærni. Þau hafa einnig sýnt á undanförnum áratugum að hagvöxtur er mögulegur án þess að auka losun gróðurhúsalofttegunda.
Á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna um sjálfbæra þróun í New York í maí, mun Norræna ráðherranefndin beina kastljósinu að sjálfbærni í framleiðslu og neyslu, með áherslu á mikilvægi umhverfismerkinga og vistvænna innkaupa hjá hinu opinbera.
Á tveimur norrænum viðburðum sem haldnir verða á ráðstefnunni verður lögð áhersla á sjálfbæra neyslu og framleiðslu í grænu hagkerfi og leiðir til þess að takast á við umhverfismengun af völdum neyslu. Sjá nánar á www.norden.org/csd19
Norrænu ríkin gegndu mikilvægu hlutverki þegar fyrsta tíu ára rammaáætlunin um sjálfbæra neyslu og framleiðslu var kynnt árið 2002 og norrænir viðburðir á CSD-19 munu miða að því að sýna framkvæmd nýrrar rammaáætlunar.
Á vefsíðu um norræna viðburði á CSD-19 munu einnig verða greinar eftir norræna ráðherra og sérfræðinga í fremstu röð, sem og upplýsingar um stöðu og framtíð sjálfbærrar þróunar.
Á vefsíðunni eru einnig fjölmargar skýrslur og annað efni um málefnið og dagskrá og efni norrænna viðburða á CSD-19.
Síðast en ekki síst mun hugmyndin um Nýja norræna matargerðarlist – nýja nálgun að sjálfbærri svæðisbundinni matargerð – verða kynnt í tengslum við þátttöku norrænu ríkjanna á ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna.
Michael Funch
Tölvupóstur
mifu@norden.org
Mia Rahunen
Sími
+45 33 96 02 61
Tölvupóstur
mira@norden.org