Document Actions

Sjálfbærar fiskveiðar á Norðurlöndum

Það er enn langt í land þar til fiskveiðar á Norðurlöndum verða sjálfbærar, en samstarfið um sjávarútveg hefur mikið vægi og þar geta þjóðirnar sameinast um eitt - sameiginlegt gildi. Þetta voru niðurstöður námstefnu sem stóð yfir í einn dag og fjallaði um norrænt samstarf og sjálfbærar fiskveiðar á Norðurlöndum. Ráðstefnan var haldin í Stokkhólmi í gær. Námstefnan var haldin af upplýsingaskrifstofunni Norden I Fokus, Sjöhistoriska museet, Fiskeriverket og félaginu Svíþjóð-Færeyjar.

14/10 2008

Það má lýsa norrænu samstarfi um fiskveiðar sem átta mismunandi tegundum fiskveiðistjórnunar, sagði Ásmundur Guðjónsson, ráðgjafi hjá Norrænu ráðherranefndinni.

Hann sagði einnig að margbreytilega stjórnun fæli í sér kosti , rétt eins og við sjávarúrvegsrannsóknir sem eru á háu gæðastigi á Norðurlöndum. Tilraunum norræns sjávarútvegs til að stunda sjálfbærar fiskveiðar er einnig lýst sem kosti, jafnvel þó skýrslur um stefnu landanna og fiskveiðistjórnun sýni að of mikið álag sé á fiskstofna í mörgum löndum. Á námstefnunni voru fulltrúar frá Noregi, Íslandi, Danmörku, Færeyjum og Svíþjóð og gerðu þeir grein fyrir því hvernig Norðurlöndin fjalla um sjálfbærar veiðar og hvað er gert í hverju landi fyrir sig til að bjarga minnkandi fiskstofnum.

Robert Andrén, frá sænska landbúnaðarráðuneytinu sagði að Norðurlöndin sem gamlar fiskveiðiþjóðir, hafi hlutverki að gegna bæði innan ESB og á alþjóðavettvangi og Inger Näslund sjávarlíffræðingur frá WWF lýsti Norðurlöndunum sem góðu svæði til að fá heildarsýn á málið.

Ekkert stjórnkerfi er umhverfisvænt ef vistkerfið er ekki í brennidepli. Frá sjónarmiði WWF myndum við vilja sjá samhæfingu stjórnunar á milli landa, þar sem aðrar atvinnugreinar væru hafðar með“, til dæmis siglingageirinn sagði hún.

Brottkast á fiski er eitt af mörgum málum sem rædd voru á námstefnunni. Þar er Noregur í forystuhlutverki, en bannað er að kasta burt fiski frá skipum á norskum hafsvæðum. Í Noregi er skylt að færa þann fisk sem veiðist til hafnar. Jan-Pieter Groenhof ráðgjafi hjá norska sjávarútvegs- og strandsvæðaráðuneytinu ræddi einnig um loftslagsbreytingar og afleiðingar þeirra.

– Þegar hitastig sjávar hækkar, breytast stofnarnir, tegundir geta fært sig til og nýjar geta komið í staðinn. Í framtíðinni er þörf fyrir aukna varkárni í tengslum við fiskveiðar, sagði hann.