Document Actions

Sjálfsögð réttindi barna að kynnast menningu í skólanum

Nú eiga börn og unglingar alls staðar á Norðurlöndunum að eiga rétt á því að kynnast menningu og skapandi greinum í skólanum. Í það minnsta ef Norðurlandaráð fær einhverju ráðið. Norðurlandaráð vill að menningar- og menntamálaráðherrarnir undirriti norræna yfirlýsingu um réttindi barna til að þróa sköpunarkraft sinn. Tillaga menningar- og menntamálanefndar Norðurlandaráðs hefur pólitískan stuðning frá öllum norrænu ríkjunum fimm.

26/10 2009
Mogens Jensen

Sýnt hefur verið fram á í alþjóðlegum rannsóknum, að það er allt of einstrengingslegt að einblína á bóklegar greinar og kennsluaðferðir, segir Mogens Jensen formaður menningar- og menntamálanefndar Norðurlandaráðs.

Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Menningarskóla í sveitarfélög á öllum Norðurlöndum, lærða listamenn við stjórnvölinn og fjölgun skapandi greina. Þetta gæti orðið árangur nýrrar áætlunar, sem á að tryggja réttindi barna til að stunda skapandi greinar í skólanum. Réttindin eiga að vera hluti af norrænni yfirlýsingu og koma til viðbótar Barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna, sem nú er 20 ára.

- Allar rannsóknir sýna að möguleikar barna til að ná árangri í skólanum tengjast mjög náið aðgangi þeirra að menningu í náminu. Og að þau lönd, sem eru efst á lista hvað varðar menntun, hafa sett skapandi greinar í forgang. Það skiptir sköpum ef tryggja á gæði í norrænum skólum, að börn fái að sýna sköpunarkrafta sína, segir Monica Green fulltrúi í menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs.

Formaður nefndarinnar, Mogens Jensen leggur á það áherslu, að pólitískar aðgerðir verndi jafnt rétt einstakra barna til að nýtasköpunarkrafta sína í skólanum og þróun menntunar í löndunum.

"Alþjóðlegar rannsóknir hafa sýnt fram á, að allt of einstrengingslegt er að einblína á bóklegar greinar og kennsluaðferðir. Ef Norðurlöndin ætla að lifa af þekkingu og nýsköpun í hnattvæddri samkeppni framtíðarinnar, verðum við að styrkja og efla sköpunarkraftinn og frumleikann sem mikilvæga færni hjá börnum og unglingum. Til þess þurfa skólar og menning að vinna saman", segir Mogens Jensen.

Nefndin bendir á að Noregur, þar sem menningarskólar eru þegar til staðar, gæti verið fyrirmynd annarra Norðurlanda hvað varðar skapandi greinar í skólum. Þingmennirnir lýsa því eftir norrænum pólitískum aðgerðum til framtíðar, jafnt menningarstefnu og menntastefnu.

Utan Norðurlandanna eru bæði pólitískar og faglegar áherslur á samþættingu sköpunarkrafts og menntunar. OECD hefur meðal annars opnað fyrir möguleika á því að setja inn mat á sköpunarkrafti í PISA kannanir og þar með taka tónlistarnámsgreinar með í PISA-kannanirnar

Fjallað verður um tillögu menningar- og menntamálanefndarinnar á Norðurlandaráðsþinginu í Stokkhólmi í þessari viku. Norðurlandaráð stendur einnig fyrir menningarviðburði í Menningarhúsinu í Stokkhólmi þann 26. október kl. 15.30-17.00.

Tengiliðir

Anne-Mette Persdotter
Sími +45 33 96 04 50
Tölvupóstur amp@norden.org

Mogens Jensen
Formaður menningar- og menntamálanefndar Norðurlandaráðs
sími: +45 61 62 42 39

Monica Green
Fulltrúi í menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs
Sími: +46705304210