Document Actions

Skapandi starf hefur mikla þýðingu fyrir skólabörn á Norðurlöndum

Menningar- og menntanefnd Norðurlandaráðs telur að auka þurfi vægi skapandi starfs í skólum. Þingmennirnir vilja að menntamálaráðherrarnir sjái til þess að boðið verði upp á skapandi námsgreinar annað hvort í skólum eða í sérstökum menningarskólum í norrænum sveitarfélögum.

14/09 2009
Barn och unga
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Rannsóknir sýna að skapandi námsgreinar eru mikilvægar fyrir þroska skólabarna og námsárangur.

- Góð kennsla í skapandi greinum leiðir til þess að börnum líður almennt betur í skólanum, sjálfstraust þeirra eykst og áhugi þeirra á náminu. Aftur á móti veldur skortur á skapandi starfi því að það dregur úr sköpunargáfu og athafnaþrá barna, sem aftur leiðir til að nýsköpun dalar og jafnframt efnahagur samfélagsins, sagði Anna Bamford á fundi sínum með Menningar- og menntanefndinni og Evrópuráðinu í Kaupmannahöfn í september.

Bamford er einn af fremstu sérfræðingum á þessu sviði í Evrópu, en þetta málefni hefur annars lítið verið rannsakað.

Til að skapa Norðurlöndum sterka stöðu í hnattvæddu hagkerfi telur nefndin mikilvægt að tryggja framþróun með listsköpun á öllum skólastigum.

- Nauðsynlegt er fyrir börn og ungmenni að fá tækifæri til að skapa. Og mikilvægt er að kennslan sé góð. Við munum í framtíðinni lifa af nýsköpun og sköpunarkrafti. Á Norðurlöndum eru bestu aðstæður til að gera þetta mögulegt, en það krefst þess að skóla- og menningarstofnanir vinni saman svo málið falli ekki milli skips og bryggju, segir Mogens Jensen formaður Menningar- og menntanefndar Norðurlandaráðs.

Noregur, með menningarskóla á vegum sveitarfélaganna og "Menningarlegu skólatöskuna", er á margan hátt fyrirmynd annarra norrænna ríkja þegar kemur að skapandi skólastarfi. Menningar- og menntanefndin lýsir eftir sameiginlegri norræni nálgun, einnig auknar rannsóknir og þekkingarmiðlun á þessu sviði.

menn hafa annars staðar en á Norðurlöndum gert sér grein fyrir því að sköpun og skólastarf heyra saman. OECD hefur nú ákveðið að gera PISA kannanir í skapandi skólastarfi, þ.e.a.s að listgreinar verði hluti af PISA-könnunum.

Í tilefni að 200 ára afmæli barnasáttmála Sameinuðu þjóðanna árið 2009 leggja þingmennirnir til að börn og ungmenni fái aðgang að skapandi greinum í skólanum.

Fjallað verður um tillögu Menningar- og menntanefndarinnar á þingi Norðurlandaráðs, sem haldið verður í sænska þinginu í Stokkhólmi í lok október.