Document Actions

Skattaflótti til Mónakó stöðvaður

Norðurlöndin, Svíþjóð, Danmörk, Noregur, Finnland og Ísland auk sjálfstjórnarsvæðanna Grænlands og Færeyja undirrituðu á miðvikudag samning um skipti á upplýsingum við Mónakó. Samningurinn er árangur umfangsmikils starfs sem unnið er innan Norrænu ráðherranefndarinnar og felst í því að stöðva skattaundanskot.

Jun 23, 2010
Jordglob

Nýir upplýsingaskiptasamningar stöðva skattaflótta til Mónakó.

Ljósmyndari
Johannes Jansson/norden.org

„Skattskyldum á ekki að gefast nokkur möguleiki á því að grafa undan alþjóðlegri samkeppnishæfni með því að fela fjármagn og tekjur. Samningurinn við Mónakó er stór áfangi í árangursríkri vinnu sem felst í því að stöðva skattaundanskot. Norðurlöndin sýna með þessu fram á að þau taka fulla ábyrgð í alþjóðlegum leikreglum", segir Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar.

Samningurinn sem undirritaður var mun veita norrænum skattayfirvöldum aðgang að upplýsingum um alla sem reyna að komast hjá því að greiða tekjuskatt og fjármagnstekjuskatt. Samningurinn felur einnig í sér gagnkvæma upplýsingagjöf um eignir sem ekki hafa verið gefnar upp í heimalandinu. Allir samningar eru tvíhliða til að uppfylla skilyrði stjórnarskrá landanna og verða þingin að staðfesta þá áður en þeir ganga í gildi.

Frá því að samningaviðræður hófust vorið 2007 hafa norrænu ríkin undirritað samninga um gagnkvæma upplýsingagjöf við Andorra, Antigua och Barbuda, Arúba, Bahama, Bermúda, Dominikanska lýðveldið, GrenadaGuernsey, Isle of Man, Jersey, Hollensku Antillaeyjarnar, Cayman IslandsBresku Jómfrúreyjarnar, Anguilla, Turcs and Caicos Islands, Gibraltar, Grenadinerna, Cook Islands, Samoa, St. Vincent, St. Kitts och NevisSan Marino, og St. Lucia. Þar með eru þau framarlega í alþjóðlegu starfi gegn skattaundanskotum.

Strax á árinu 2006 tóku norrænu ríkin ákvörðun um að hefja samningaviðræður við stjórnvöld í nefndum skattaparadísum til að koma í veg fyrir undanskot í hinu alþjóðlega fjármálakerfi. Samstarfið sem nú heldur áfram, styrkir samningsstöðu Norðurlanda og heldur kostnaði við samningaviðræðurnar í lágmarki.

Samningarnir voru undirritaðir 23. júní 2010 við hátíðlega athöfn í sendiráði Noregs í París.

Hafið samband við Torsten Fensby, verkefnisstjóra, Norrænu ráðherranefndinni

Sími +33 678 251 289

Nánari upplýsingar um samninga gegn skattaflótta