Skilvirkari fiskveiðar með auknum réttindum
Of stór fiskveiðifloti, rányrkja og taprekstur í útgerð. Þetta eru þau vandamál sem um allan heim er reynt að leysa með fiskveiðistjórnun. Skilvirkari veiðar og þá sérstaklega efnahagslegar þættir í fiskveiðistjórnunarkerfum voru umfjöllunarefni á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin var á Íslandi dagana 27.-28. ágúst.
Í máli margra fyrirlesara kom fram að svokallaðar réttindagrundaðar fiskveiðar leiddu til bættrar afkomu og tryggðu sterkari fiskstofna. Réttindagrunduð fiskveiðistjórnun byggir á því að atvinnusjómenn, fyrirtæki og öðrum aðilum er úthlutað einstaklingsbundnum réttindum, t.d. kvóta og veiðileyfum. Reysnaln hefur sýnt að slík réttindi og möguleikinn á að framselja hafa jákvæð áhrif meðal annars á stærð fiskiskipaflotans.
Samkvæmt sérfræðingum eru þó enn umfangsmikil vadamál óleyst, einnig í réttindagrundaðri fiskveiðistjórnun – taka þarf með í reikninginn félagslegar, svæðisbundnar og loftslagstengdar breytingar við uppbyggingu fiskveiðistjórnunarkerfa. Margir ítrekuðu einnig mikilvægi þess að eigandi auðlindanna, í flestum tilfellum hið opinbera, fái hlutdeild í þeim verðmætum sem fiskveiðarnar skapa.
Markmið ráðstefnunnar Skilvirk fiskveiðistjórnun var að fjalla um fiskveiðistjórnunarkerfi margra ólíkra landa og hvaða aðferðir virka og hverjar hafa heppnast verr. Ráðstefnan var alþjóðleg og komu gestir víða að, m.a. Kanada, Nýja-Sjálandi og Bandaríkjunum auk Norðurlandanna.
Fiskveiðimál eru ofarlega á baugi á Norðurlöndum og í Evrópu, ekki síst vegna endurskoðunar á fiskveiðistefnu ESB. Núgildandi fiskveiðistefna þykir óskilvirk, en fiskveiðistefnur norrænu ríkjanna eru taldar meðal þeirra bestu í heiminum. Norræna ráðherranefndin mun gera sitt ýtrasta til að hafa áhrif á endurskoðun fiskveiðistefnu ESB. Það verður gert með því að leggja til að norrænar lausnir verði hluti ef endurskoðunarferlinu.
Hagfræðistofnun Háskóla Íslands skipulagði ráðstefnuna í samstarfi við Landbúnaðar- og sjávarútvegsráðuneytið og Norrænu ráðherranefndina. Ráðstefnan var eitt af formennskuverkefnum Íslendinga
í ráðherranefndinni.
