Skólaheimsóknir efla áhuga á Norðurlandasamstarfi
Vekjum áhuga ungs fólks á norrænu samstarfi með því að efla samskipti milli skóla á Norðurlöndum. Minna Lindberg, forseti Norðurlandaráðs æskunnar, sendir þessa hvatningu til Norrænu ráðherranefndarinnar.
Lindberg, ásamt öðrum fulltrúum í forsætisnefnd Norðurlandaráðs æskunnar, funduðu nýverið með Karen Ellemann, samstarfsráðherra Danmerkur, og ræddu hvað ráðherranefndin gæti gert og stefndi að til að hvetja komandi kynslóðir til virkrar þátttöku í norrænu samstarfi. Danir fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni á þessu ári.
„Auka má áhuga á Norðurlandasamstarfinu með því að virkja ungt fólk til þátttöku og veita því persónulega reynslu af því. Þess vegna er mikilvægt, sérstaklega fyrir skólabekki, að taka þátt í þeim áætlunum um nemendaskipti sem í boði eru“, segir Minna Lindberg frá Finnlandi. Samkvæmt Norðurlandaráði æskunnar er auðveldast að ná til ungs fólks í gegnum menntakerfið og þess vegna ættu grunnskólar og framhaldsskólar (menntaskólar og starfsmenntaskólar) að vera í virku sambandi við jafnaldra annars staðar á Norðurlöndum og á sjálfstjórnarsvæðunum.
„Ef komandi kynslóðir eiga að hafa áhuga á norrænu samstarfi til frambúðar verðum við að gera átak í því að bjóða nemendum að taka þátt í norrænu samstarfi“, sagði Lindberg að loknum fundi með Karen Ellemann, sem haldinn var á degi Norðurlanda 23. mars s.l.
Norðurlandaráð æskunnar samþykkti yfirlýsingu um sama málefni á þingi sínu í Stokkhólmi í október 2009.
Tengiliðir
Minna Lindberg
Tölvupóstur
minna.lindberg@su.fi
