Skortur á vinnuafli - óskum eftir innflytjendum
Þrátt fyrir atvinnuleysi og efnahagskreppu er barist um vel menntað starfsfólk. Baráttan um góða starfskrafta var í brennidepli á norrænni ráðstefnu um alþóðlegar „hausaveiðar" sem haldin var þann 3. maí. Niðurstaða nýrrar skýrslu er að norrænn vinnumarkaður verður sífellt móttækilegri fyrir því að fá erlent vinnuafl.
Vel menntað starfsólk er eftirsótt á alþjóðlegum vinnumarkaði og norrænu ríkin verða sífellt móttækilegri fyrir erlendu vinnuafli – en eru Norðurlönd búin undir samkeppnina?
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Norðurlandabúum fækkar svo lítið að ekki er nóg af ungu fólki til að sjá fyrir sífellt fleiri gamalmennum.
Þess vegna er nauðsynlegt að laða að og halda í erlent vinnuafl. Vandamálið er hvernig við stöndum að því.
Norræna ráðherranefndin stóð þann 3. maí fyrir ráðstefnu um úrlausnarefni í alþjóðlegum „hausaveiðum" þar sem fjallað var um málið.
Ráðstefnan er liður í formennskuáætlun Dana í Norrænu ráðherranefndinni og var skipulögð af danska atvinnumálaráðuneytinu.
Danir stefna að þvi að ná til sín erlendu vinnuafli í stórum stíl.
Um miðjan apríl hrinti danska ríkisstjórnin úr vör þremur verkefnum, m.a. á sviði atvinnumálaráðuneytisins sem eiga að greiða fyrir ráðningu erlends launafólks.
Þá hefur Norræna ráðherranefndin gefið út skýrsluna Rekruttering av kompetansearbeidskraft fra tredjeland til Norden en niðurstaða hennar er að norrænn vinnumarkaður verði sífellt móttækilegri fyrir erlent vinnuafl.
„Lýðfræðilegar breytingar og skortur á starfskröftum vegna þeirra er ein meginskýringin á þessari þróun. Þótt undarlegt megi virðast varð þessi þróun í aðdraganda fjármálakreppunnar og þess atvinnuleysis sem fylgdi í kjölfarið", segir í skýrslunni.
Í maíútgáfu fréttabréfsins Atvinnulíf á Norðurlöndum er einnig fjallað um „Leitina að vel menntuðu vinnuafli".
Niðurstaðan þar er m.a. að gott vinnuumhverfi og góð félagsleg þjónusta er meðal þess sem helst laðar að erlenda atvinnuleitendur.
Vel menntað fólk er með öðrum orðum eftirsótt á alþjóðlegum vinnumarkaði – en eru Norðurlönd í stakk búin fyrir samkeppnina? Um það er fjallað á ýmsan hátt í þessum ritum og ráðstefnum.
Tengiliðir
Michael Funch
Sími
+45 33960332
Tölvupóstur
mifu@norden.org
