Skriður kominn á orkusamstarf milli Kína og Norðurlanda
Sjálfbærar orku- og loftslagslausnir voru á dagskrá þegar norræir ráðherrar funduðu með fulltrúum Kínastjórnar á heimssýningunni í Sjanghæ á föstudaginn. Rætt var um möguleika þess að auka enn frekar samstarf Kína og Norðurlanda í orku- og loftslagsmálum.
„Við þurfum samstarf sem styrkir efnahagsvöxt samhliða því að draga úr losun koltvísýrings. Ég tel að Kína og Norðurlöndin geti bætt hvert annað upp á þessu sviði," sagði Karen Ellemann umhverfis- og samstarfsráðherra Danmerkur.
Norræni-kínverski orku- og loftslagsdagurinn, sem haldinn var á heimssýningunni í Sjanghæ var liður í hnattvæðingarátaki Norrænu ráðherranefndarinnar.
Þátttakendur voru sammála um að fundurinn myndi styrkja samstarf Norðurlanda og Kína í orku- og loftslagsmálum. Jafnframt er ljóst að áframhaldandi samstarf þarf að byggja á sterkum tengslanetum og aðgerðum, sem gera miklar kröfur til samstarfs ríkisstjórnanna, rannsóknastofnana og einkafyrirtækja í Kína og á Norðurlöndum.
Áhersla var lögð á mikilvægi aukins samstarfs allra aðila á sviði sjálfbærrar orkutækni og eins að hvetja til nýsköpunar. Í takt við yfirskrift Expo-heimsýningarinnar, sem er „Betri borg, betra líf”, var sjónum beint að mikilvægi þess að skipuleggja vistvænar borgir, með nýskapandi tækni og áherslu á gæðauppbyggingu innviða.
„Skipulagning og bygging umhverfisvænna og grænna borga nú og til framtíðar er mikilvægur liður í baráttunni gegn loftslagsbreytingunum, í því að minnka fátækt og félagsleg vandamál, auka stöðugleika í samfélaginu og styrkja undirstöðu hagvaxtar. Þess vegna beinum við sjónum, á norræna deginum á Expo, að orku- og loftslagsmálum, tveimur brýnum málefnum sem borgir okkar standa frammi fyrir og ég tel að Norðurlöndin hafi þar sitt til málanna að leggja." Þetta sagði Jan Vapaavuori húsnæðis- og samstarfsráðherra Finnlands við upphaf dagsins, sem haldinn var í finnska sýningarskálanum.
Fram kom að Kínverjar hafa óskað eftir að miðlað verði þekkingu og reynslu milli Kína og Norðurlandanna. Gu Jun aðstoðarforstjóri kínverku Orkustofnunarinnar, lagði meðal annars til að Kína miðlaði reynslu sinni af stefnumótunarvinnu, tilskipunum og lagasetningu og sýndi hann mikinn áhuga á norrænu ríkjunum.
„Við eigum mjög góða möguleika á að miðla færni milli þessara svæða og getum þannig samræmt nýtingu og tækniþróun," hélt Karen Ellemann áfram. Hún lagði auk þess áherslu á að Kínverjar væru í lykilstöðu þegar kæmi að þróun orkutækni og að Norðurlöndin byggju að mikilli þekkingu á því sviði og hefðu auk þess einstæða reynslu af alþjóðlegu rannsókna- og þróunarstarfi.
Viðburðurinn var haldinn í skála Norðurlandanna, þar sem boðið var til fyrirlestra og umræðna. Meðal annarra fulltrúa voru Palle Christiansen fjármála- og samstarfsráðherra Grænlands, Johan Tiedemann ráðuneytisstjóri í ráðuneyti samstarfsráðherra Norðurlanda, Cristina Husmark Pehrsson og Halvard Ingebrigtsen og Trond Giske ráðuneytisstjóri í norska viðskipta- og iðnaðarráðuneytinu. Auk þeirra Jiang Kejun framkvæmdastjóri orkurannsóknastofnunarinnar Chinese National Development and Reform Commission, Bo Diczfalusy stjórnandi IEA stofnunar um sjálfbæra orkustefnu og tækni, og Heidi Hiltunen umhverfisráðgjafi í sendinefnd ESB í Kína.
Claus Lønborg framkvæmdastjóri Nýsköpunarseturs Danmerkur, Jaani Heinonen, framkvæmdastjóri FinNode, Eldur Ólafsson frá Enex China, Geysir Green Energy, Grethe Bergsland frá Innovation Norway og Van Hoangfrá Swedish Trade Council kynntu gott samstarf Norðurlanda og Kína fyrir gestum.
Auk þess hélt Anne Cathrine Gjærde, framkvæmdastjóri Norrænna orkurannsókna erindi sem vakti mikla athygli þar sem hún lýsti getu Norðurlanda og hnattvæðingarátaki forsætisráðherranna þar sem lögð er áhersla á norræna orkutækni og styrkt samstarf Norðurlandanna og milli Norðurlanda og annarra landa.
Norræni orku- og loftslagsdagurinn var haldinn 25. júní 2010 á heimssýningunni í Sjanghæ. Viðburðurinn var hluti af hnattvæðingarátaki sem norrænu forsætisráðherrarnir ýttu úr vör til að takast á við viðfangsefni hnattvæðingar.
Á heimssýningunni í Sjanghæ sameinast Norðurlöndin um norrænan-kínverskan orku- og loftslagsdag, landslagsarkitektúrsýninguna; New Nordic Landscapes, námstefnu um matvælaöryggi og hönnunarsýningu um hjálpartæki. Auk þess er sýnd norræn fjölskyldukvikmynd á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í Sjangæ.
Norræni orku- og loftslagsdagurinn var í umsjón Norrænna orkurannsókna, stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina.
