Skýrsla efnahagsráðgjafa: Aukið samstarf myndi gagnast Norðurlöndum
Ný skýrsla frá efnahagsráðgjöfum bendir á kosti þess að auka samstarf Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
Við sjáum nýja heimsskipan, þar sem nýir aðilar hagnast á því að standa saman á afmörkuðum svæðum, segir Lene Espersen utanríkisráðherra Danmerkur, í tengslum við útgáfu á skýrslu efnahagsráðgjafa um samstarf Norðurlanda og Eystrsaltsríkjanna.
- Ljósmyndari
- skanephoto.com/norden.org
Ný skýrsla, sem m.a. var unnin af Søren Gade fyrrverandi varnarmálaráðherra Danmerkur kom út þann 27. ágúst í tilefni af utanríkisráðherrafundi Norðurlanda og Eystrasaltsríkjanna.
Í skýrslunni er bent á að stöðugt verði nauðsynlegra að halda uppi viðamiklu stjórnmálasamstarfi til að standa vörð um hagsmuni Eystrasaltssvæðisins, ekki síst gagnvart ESB, NATÓ og öðrum alþjóðlegum samtökum.
Lene Espersen, utanríkisráðherra og samstarfsráðherra Danmerkur, sem fer fyrir formennsku Dana í Norrænu ráðherranefndinni, tekur vel í þær tillögur sem birtar eru í skýrslunni.
- Við sjáum nýja heimsskipan, þar sem nýir aðilar hagnast á því að standa saman á afmörkuðum svæðum, sagði Espersen við danska blaðið Politiken.
Ráðherrann telur vera mikil tækifæri í samstarfi á Norðurskautssvæðinu, auk samstarfs við Rússland og sameiginlega afstöðu til grannsvæðastefnu ESB.
Hægt er að lesa skýrsluna, sem skrifuð er að frumkvæði Dana og Letta, á heimasíðu danska utanríkisráðuneytisins (ensk útgáfa).
