Skýrsla rannsóknarnefndar Alþingis: - Handbók að betra þjóðfélagi
- Nauðsynlegt er að algjör hugarfarsbreyting verði á Íslandi segir Baldvin Þór Bergsson blaðamaður og kallar skýrslu rannsóknarnefndar Alþingis handbók að betra þjóðfélagi.
- Þau sem skrifuðu skýrsluna um hrunið eru mjög hugdjörf, segir Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og fulltrúi í Norðurlandaráði.
- Ljósmyndari
- Magnus Fröderberg/norden.org
- Ísland er lítið land með lítið stjórnmálakerfi þar sem allt er skoðað í ljósi persónulegra hagsmuna, sagði Baldvin Þór á hádegisverðarfundi á vegum Norden i Fokus í Stokkhólmi. Erindið flutti hann í kjölfar þess að rannsóknarnefnd Alþingis gaf út skýrslu um efnahagshrunið. Umræðan var heit frá byrjun og ósætti um ICESAVE-skuldbindingar landsins og hlutverk fjölmiðla var olía á eldinn.
- Hrun í stjórnmálum og stjórnsýslu
- Skýrslan gagnrýnir fjölmiðla harkalega fyrir að hafa ekki verið gagnrýnni á starfsemi bankanna og ég tel að fjölmiðlar hafi verið notaðir. Stóru fjölmiðlafyrirtækin á Íslandi eru of nátengd hagsmunaaðilum í atvinnulífinu og tveimur stærstu stjórnmálaflokkunum, sagði Siv Friðleifsdóttir alþingismaður og fulltrúi í Norðurlandaráði. Hún sagði að í skýrslunni væri sagt frá pólitísku og stofnanalegu hruni í íslensku þjóðfélagi.
- Þau sem skrifuðu skýrsluna eru mjög hugdjörf. Fyrrverandi forsætisráðherra, tveir aðrir ráðherrar og fyrrverandi seðlabankastjóri og forstjóri fjármálaeftirlitsins brugðust skyldum sínum. Mörg okkar sem erum í stjórnmálum höfðu á tilfinningunni að eitthvað væri að, en það er erfitt að skilja hvernig þetta gat farið svona illa. Það er ekki góð tilfinning að vera stjórnmálamaður á Íslandi um þessar mundir sagði Siv.
- Norðurlönd sviku okkur ekki
- Íslendingum finnst þeir hafa verið sviknir af sinni eigin þjóð. Þeir eru vanir því að berjast við náttúruöflin, en ekki við ríkið og stofnanir samfélagsins, sagði Guðmundur Árni Stefánsson, sendiherra í Stokkhólmi.
Anders Ljunggren sendiherra Svía í Reykjavík, vísaði á bug ásökunum um að Norðurlöndin hafi brugðist frændþjóð sinni í vestri. Siv Friðleifsdóttir taldi þvert á móti að norrænu ríkin hefðu gert allt sem í þeirra valdi stóð til að aðstoða Íslendinga.
- Í skýrslunni kemur fram að norrænu seðlabankarnir hafi krafist þess að skipt yrði um stjórnendur í íslenska seðlabankanum, og ekki að ástæðulausu. Þeir höfðu ekki trú á stjórnendum seðlabankans, en það vissi almenningur á Íslandi ekki fyrr en skýrslan kom út, sagði Siv.
Þróunin í ESB mikilvæg fyrir Ísland
Lára Long er flugumferðarstjóri í Málmey, en hún flutti til Svíþjóðar fyrir hrunið.
Ég flutti til Svíþjóðar, seldi bílinn og borgaði lánin. Viku seinna féll íslenska krónan.
- Ég valdi að flytja frá Íslandi sem var orðið einsleitt og ýkt, þar sem "allir", líka ég, voru með lán í erlendri mynt. Ég flutti til Svíþjóðar, seldi bílinn og borgaði lánin. Viku seinna féll íslenska krónan, sagði Lára Long. Hún efast um að hún hafi áhuga og fjárhagslega getu til að snúa aftur og er ekki viss um að ESB sé svarið fyrir Ísland, en málið var rætt undir lok hádegisfundarins.
- Þróunin í ESB og evrópska myntsamstarfinu hefur ekki minni áhrif á það hvort Ísland gengur í ESB en þróunin á Íslandi sjálfu, sagði Anders Ljunggren sendiherra.
