Document Actions

Staðardagskrá 21 á Norðurslóðum

06/05 2005

Staðardagskrá 21 á Norðurslóðum

Fjallað er um samstarfsverkefni milli Ísafjarðar, Longyearbæjar á Svalbarða, Noregs og Sisimut sveitafélagsins á Grænlandi í nýrri skýrslu Norrænu ráðherranefndarinnar.

Í skýrslunni er leitast við að lýsa útfærslu Staðardagskrár 21 í hverju samfélagi fyrir sig á kerfisbundinn hátt og bera hana saman. Atriði sem borin eru saman eru: Uppbygging sveitafélags og lýðræði, atvinnulíf, sorphirða, frárennslismál, mengun hafsins, veiðar og líffræðileg fjölbreytni, fjölbreytni, náttúruvernd, ferðaþjónusta og menningarminjar.

Verkefnið Staðardagskrá 21 hófst á Norðurslóðum í ágúst árið 2000, en það er styrkt af stjórnarnefnd Norðurslóðasamstarfsins, sem heyrir undir náttúru-, útilífs- og menningarumhverfisnefnd Norrænu ráðherranefndarinnar (NFK).

Verkefnið er liður í framkvæmdaáætlun um varðveislu náttúru- og menningarumhverfis á Norðurslóðum; á Grænlandi, Íslandi og Svalbarða. Markmið verkefnisins er að auka og auðvelda starf sveitafélaga við að uppfylla skilyrði framkvæmdaáætlunar um sjálfbæra þróun á Norðurslóðum, samkvæmt kafla 28 í Ríó-samkomulaginu (Staðardagskrá 21).

Staðardagskrá 21 á Norðurslóðum er samstarfsverkefni Ísafjarðar, Sisimut sveitafélagsins á Grænlandi og Longyearbæjar á Svalbarða. Niðurstöður verkefnisins eru kynntar í þessari lokaskýrslu.

Skýrslan er einvörðungu gefin út í rafrænu formi: