Standa á vörð um norræna menningararfinn
Bente Dahl fulltrúi í menningar- og menntamálanefnd Norðurlandaráðs hvetur norrænu ríkisstjórnirnar til að setja á stofn rafrænan vettvang til að miðla og viðhalda "hinum upprunalega" norræna menningararfi.
Bente Dahl leggur áherslu á mikilvægi þess að norrænu ríkisstjórinar axli ábyrgð og opni vefsíðu, þar sem námsmenn, fagmenn og mögulegir viðskiptavinir eigi vettvang til gagnlegra samskipta.
- Ljósmyndari
- Johannes Jansson/norden.org
Verði ekkert að gert, er raunveruleg hætta á því að hefðbundið handverk, sem stundað hefur verið kynslóð fram af kynslóð, hverfi segir Bente Dahl.
Þess vegna ætlar Norðurlandaráð að bregðast við með úrræðum, sem eiga að styrkja samskipti og samstarf menntastofnana og atvinnurekenda, þannig að iðnaðarmenn eins og úrsmiðir, fiðlusmiðir, veggskreytingamenn, hjólasmiðir og silfursmiðir verði til á Norðurlöndum um ókomin ár.
Bente Dahl leggur áherslu á mikilvægi þess að norrænu ríkisstjórnirnar axli ábyrgð og opni vefsíðu, þar sem námsmenn, fagmenn og viðskiptavinir eigi sameiginlegan vettvang til gagnlegra samskipta.
Norrænu ríkisstjórnirnar hafa með undirritun samnings UNESCO um menningararfinn, skuldbundið sig til að varðveita þjóðararf, hefðir og handverk sem ganga í arf mann fram af manni.
Og það liggur á, því að engin trygging er til fyrir því að sú kunnátta sem hefðbundið handverk byggir á, verði til að eilífu, segir Bente Dahl.
